Eignir verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða námu 1.477,1 ma.kr. í mars og hækkuðu um 1,8 ma.kr. milli mánaða. Eignir verðbréfasjóða námu 170,8 ma.kr. og lækkuðu um 2,8 ma.kr., eignir fjárfestingarsjóða námu 593,8 ma.kr. og lækkuðu um 9,2 ma.kr. og eignir fagfjárfestasjóða námu 712,4 ma.kr. og hækkuðu um 13,8 ma.kr.
Fjöldi sjóða í lok mars var 263 sem skiptist í 38 verðbréfasjóði, 78 fjárfestingarsjóði og 147 fagfjárfestasjóði.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is