Fara beint í Meginmál

Verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóðir í nóvember 2024 6. janúar 2025

Eignir verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða námu 1.327,5 ma.kr. í nóvember og hækkuðu um 18,0 ma.kr. milli mánaða. Eignir verðbréfasjóða námu 156,7 ma.kr. og hækkuðu um 0,9 ma.kr., eignir fjárfestingarsjóða námu 539,8 ma.kr. og hækkuðu um 15,5 ma.kr. og eignir fagfjárfestasjóða námu 631,0 ma.kr. og hækkuðu um 1,7 ma.kr.

Fjöldi sjóða í lok nóvember var 244 sem skiptist í 37 verðbréfasjóði, 77 fjárfestingarsjóði og 130 fagfjárfestasjóði.

Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is