Eignir verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða námu 1.425,2 ma.kr. í nóvember og lækkuðu um 1,0 ma.kr. milli mánaða. Eignir verðbréfasjóða námu 171,7 ma.kr. og hækkuðu um 3,3 ma.kr., eignir fjárfestingarsjóða námu 569,1 ma.kr. og lækkuðu um 6,7 ma.kr. og eignir fagfjárfestasjóða námu 684,3 ma.kr. og hækkuðu um 2,3 ma.kr.
Fjöldi sjóða í lok nóvember var 258 sem skiptist í 38 verðbréfasjóði, 79 fjárfestingarsjóði og 141 fagfjárfestasjóði.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is