Fara beint í Meginmál

Verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóðir í október 2024 28. nóvember 2024

Eignir verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða námu 1.309,4 ma.kr. í október og hækkuðu um 20,0 ma.kr. milli mánaða. Eignir verðbréfasjóða námu 155,8 ma.kr. og hækkuðu um 1,9 ma.kr., eignir fjárfestingarsjóða námu 524,4 ma.kr. og hækkuðu um 7,8 ma.kr. og eignir fagfjárfestasjóða námu 629,3 ma.kr. og hækkuðu um 10,4 ma.kr.

Fjöldi sjóða í lok október var 243 sem skiptist í 37 verðbréfasjóði, 77 fjárfestingarsjóði og 129 fagfjárfestasjóði.

Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is