Fara beint í Meginmál

Verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóðir í október 2025 27. nóvember 2025

Eignir verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða námu 1.426,2 ma.kr. í október og hækkuðu um 16,4 ma.kr. milli mánaða. Eignir verðbréfasjóða námu 168,4 ma.kr. og hækkuðu um 2,8 ma.kr., eignir fjárfestingarsjóða námu 575,8 ma.kr. og hækkuðu um 8,5 ma.kr. og eignir fagfjárfestasjóða námu 682,0 ma.kr. og hækkuðu um 5,1 ma.kr.

Fjöldi sjóða í lok október var 254 sem skiptist í 38 verðbréfasjóði, 79 fjárfestingarsjóði og 138 fagfjárfestasjóði.

Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is