Vorfundur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og tengdir fundir fóru fram í Washington DC. í liðinni viku. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu tóku þátt í fundunum ásamt öðrum fulltrúum Seðlabanka Íslands.
Seðlabankastjóri er fulltrúi Íslands í sjóðráði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (e. Board of Governors), æðstu stofnun sjóðsins, og sat hann m.a. fundi fjárhagsnefndar sjóðsins (e. International Monetary and Financial Committee, IMFC). Seðlabankastjóri og aðrir fulltrúar bankans áttu jafnframt fundi með yfirstjórn og sérfræðingum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, kjördæmi Norður- og Eystrasaltslanda hjá sjóðnum og fulltrúum alþjóðlegra fjármálafyrirtækja og seðlabanka ásamt því að sækja málstofur og ráðstefnur á málefnasviði seðlabanka.
Fjárhagsnefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fundar tvisvar á ári. Á fundunum kynnir sjóðurinn mat sitt á stöðu og horfum í heimsbúskapnum, fjármálastöðugleika og ríkisfjármálum, auk þess sem framkvæmdastjóri sjóðsins kynnir stefnuyfirlýsingu sína (e. Global Policy Agenda, GPA). Í stefnuyfirlýsingunni og kynningum annarra forsvarsmanna sjóðsins kom m.a. fram að heimsbúskapurinn finni nú fyrir áhrifum stríðsátaka, sem muni hafa víðtækar afleiðingar, einkum fyrir lönd í viðkvæmri stöðu. Þetta gerist á sama tíma og svigrúm til að mæta áföllum er víða takmarkað og hnökrar í alþjóðasamstarfi meiri en um langa hríð. Spáð er hægari hagvexti á heimsvísu en framvinda stríðsátaka og áhrif vaxandi brotamyndunar í alþjóðastjórnmálum munu skipta miklu fyrir efnahagsþróunina. Þá gæti mikil skuldsetning margra ríkja og minni trúverðugleiki stofnana veikt horfurnar enn frekar. Yfirskrift ritsins World Economic Outlook var að þessu sinni Alþjóðahagkerfi í skugga stríðs (e. Global Economy in the Shadow of War).
Hér má finna stefnuyfirlýsingu framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins:
Þar sem ekki náðist nú, fremur en síðustu ár, samkomulag um orðalag yfirlýsingar fjárhagsnefndarinnar (IMFC Communiqué) í heild gaf formaður nefndarinnar, Mohammed Aljadaan fjármálaráðherra Sádi-Arabíu, út yfirlýsingu í eigin nafni en meginefni hennar var stutt af öllum fulltrúunum í nefndinni (IMFC Chair’s Statement). Hér má finna yfirlýsinguna:
Fulltrúi kjördæmis Norður- og Eystrasaltslanda í fjárhagsnefndinni var að þessu sinni Christian Kettel Thomsen seðlabankastjóri Danmerkur. Yfirlýsingu hans fyrir hönd kjördæmisins (e. IMFC Statement) má nálgast hér:
Margvísleg önnur gögn sem varða nýjasta mat sjóðsins á stöðu og horfum í heimsbúskapnum um þessar mundir má finna á vef sjóðsins. Sjá nánar hér: