Vorfundur lánamála var haldinn 6. maí sl. í Seðlabanka Íslands. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra ávörpuðu fundinn í upphafi. Því næst kynnti Haukur C. Benediktsson, forstöðumaður lánamála ríkisins, ársskýrslu um lánamál ríkissjóðs fyrir árið 2025. Þá fjallaði Valdimar Ármann, framkvæmdastjóri markaðsviðskipta hjá Seðlabanka Íslands, um fasta lánstímavexti, m.a. um hvernig þeir geta nýst markaðsaðilum við að verðleggja fjármálaafurðir.
Í skýrslunni er fjallað um fjármögnun ríkissjóðs, þróun skulda og lántökur aðila með ríkisábyrgð. Birting skýrslunnar er liður í því að auka gagnsæi við stjórn ríkisfjármála og bæta upplýsingagjöf til markaðsaðila og almennings.
Seðlabanki Íslands fer með umsýslu lána fyrir ríkissjóð á grundvelli samnings við fjármála- og efnahagsráðuneytið og skilar árlegri samantekt um lánamál.