Fara beint í Meginmál

Yfirlýsing peningastefnunefndar 4. febrúar 2026 4. febrúar 2026

Peningastefnunefnd
Peningastefnunefnd

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 7,25%. Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun.

Verðbólga mælist nú 5,2% og hefur aukist á ný. Þótt hækkun verðlags í janúar megi að miklu leyti rekja til breyttrar gjaldtöku hins opinbera af nýjum bifreiðum eru verðhækkanir á tiltölulega breiðum grunni. Undirliggjandi verðbólguþrýstingur er því áfram þrálátur þótt hægt hafi á efnahagsumsvifum og skýr merki séu um kólnun á vinnumarkaði.

Samkvæmt nýbirtri spá Seðlabankans er spennan í þjóðarbúinu horfin, útlit fyrir tiltölulega hægan hagvöxt og að verðbólga hjaðni þegar líður á árið. Þrátt fyrir tímabundna aukningu verðbólgu í byrjun árs hafa verðbólguhorfur til lengri tíma lítið breyst. Óvissa er þó mikil enda launahækkanir enn töluverðar og verðbólguvæntingar mælast áfram yfir markmiði.

Af þessum sökum telur peningastefnunefnd rétt að halda vöxtum bankans óbreyttum. Frekari ákvarðanir um lækkun vaxta bankans eru háðar því að skýrar vísbendingar komi fram um að verðbólga sé að hjaðna í 2½% markmið bankans.

Mótun peningastefnunnar næstu misseri mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.

Frétt nr. 2/2026
4. febrúar 2026

Sjá nánar í skjali hér fyrir neðan:

Tengdar greinar

04. febrúar 2026
Peningamál 2026/1