Fara beint í Meginmál

Yfirlýsing peningastefnunefndar 7. október 2026 7. október 2026

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 8,00%. Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun.

Verðbólga hefur aukist enn frekar frá því í sumar eins og búist var við. Hún mælist nú 5,9% og hefur ekki verið meiri í tvö ár. Aukning mældrar verðbólgu hefur fyrst og fremst litast af áhrifum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum og hækkun opinberra gjalda. Undirliggjandi verðbólga hefur hins vegar haldist tiltölulega stöðug í liðlega 4% um nokkra hríð.

Þótt greinilega sé tekið að hægja á efnahagsumsvifum er mæld og undirliggjandi verðbólga enn of mikil og verðbólguvæntingar of háar. Flest bendir þó til þess að verðbólga hjaðni tiltölulega hratt á næsta ári en óvissa er töluverð, ekki síst hvað varðar þróun alþjóðlegra efnahagsmála og framvindu á innlendum vinnumarkaði.

Í ljósi þessarar óvissu og hversu þrálát verðbólga og verðbólguvæntingar hafa verið telur peningastefnunefnd rétt að viðhalda þéttu peningalegu taumhaldi. Mótun peningastefnunnar mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.

Frétt nr. 10/2026
7. október 2026