Fara beint í Meginmál

Sérrit 8: Fjármálastöðugleiki og hlutverk Seðlabanka Íslands 16. október 2012

Árið 2011 fékk Seðlabanki Íslands Sir Andrew Large til að gera úttekt á hlutverki seðlabanka á sviði fjármálastöðugleika, sérstaklega hvað varðar skipulag þeirra mála. Hann var beðinn um að taka mið af hruni fjármálakerfisins hér á landi og af alþjóðlegum hræringum á því sviði. Hann tók einnig tillit til umræðu um þessi mál og breytinga sem eru að eiga sér stað víða um heim. Skýrslu hans „Financial stability: The Role of the Central Bank of Iceland“ (Fjármálastöðugleiki og hlutverk Seðlabanka Íslands) er ætlað að styðja við umræðu um þessi mál, m.a. með tillögum um breytingar á skipulagi stofnana sem hafa með fjármálastöðugleika og kerfiseftirlit að gera. Mikilvægi fyrirkomulags þessara mála hefur aukist og mun gera það enn frekar eftir afnám fjármagnshafta þegar íslensku bankarnir fjármagna sig í auknum mæli á alþjóðlegum lánamörkuðum. Í inngangi skýrslunnar, sem er á ensku, er að finna íslenska þýðingu á yfirliti og viðaukum hennar. Sir Andrew Large hefur langa reynslu af bankamálum. Hann var formaður verðbréfa- og fjárfestingaráðs Bretlands árin 1992–1997 (sú stofnun var að hluta forveri fjármálaeftirlitsins, FSA), varaformaður stjórnar Barclays banka árin 1998-2002 og aðstoðarbankastjóri Englandsbanka með ábyrgð á fjármálastöðugleika árin 2002-2006, þar sem hann átti sæti í peningastefnunefnd bankans.

Fyrri útgáfur

Fjöldi á síðu
03. júní 2026
sérrit
fjármálastöðugleiki
greiðslumiðlun
03. desember 2025
sérrit
lánþegaskilyrði
fjármálastöðugleiki
16. október 2025
ritið greiðslujöfnuður
sérrit
21. september 2018
sérrit
23. desember 2016
sérrit
20. desember 2010
sérrit