Málstofa: Stöðugleikamyntir - bera þær nafn með rentu?
Þorvarður Tjörvi Ólafsson, aðstoðardeildarstjóri fjármagnsflæðisdeildar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
Þorvarður Tjörvi Ólafsson, aðstoðardeildarstjóri fjármagnsflæðisdeildar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, verður með málstofu hjá Seðlabanka Íslands þriðjudaginn 15. desember kl. 15:00.
Stöðugleikamyntum hefur vaxið fiskur um hrygg á undanförnum árum. Fyrir flest lönd í heiminum eru þær gefnar út utan landsteinanna í erlendum gjaldmiðlum og flæða í billjónatali á ógnarhraða þvert yfir landamæri.
Nú til dags eru stöðugleikamyntir einkum notaðar í viðskiptum með aðrar sýndareignir en líklegt er að þær færi sig í auknum mæli yfir á önnur svið. Því geta fylgt ýmsir kostir, svo sem örari og ódýrari greiðslur á milli landa, sem og aukin samkeppni og nýsköpun í fjármálum.
En efnahagslegum stöðugleika getur líka stafað ógn af þessum nýju myntum því þær geta skapað áskoranir fyrir hagstjórn, ekki síst þar sem hún er veik fyrir. Miðlun peningastefnu getur raskast, áhættur byggst upp í fjármálakerfinu og fjármagnshreyfingar milli landa reynst sveiflukenndari. Notkun fjármagnshafta á borð við þau sem Ísland beitti í fjármálakreppunni getur einnig reynst erfiðari í framkvæmd vegna tilkomu stöðugleikamynta, jafnvel þegar mest á reynir í fjármálakreppum.
Í nýrri skýrslu fjalla sérfræðingar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um stöðugleikamyntir í erlendum gjaldmiðlum og hvernig þurfi að aðlaga hagstjórnina að breyttum aðstæðum samfara því að notkun þessara mynta breiðist út. Þorvarður Tjörvi var einn af stjórnendum rannsóknarinnar sem var samstarfsverkefni fjölda deilda innan Sjóðsins.
Þorvarður Tjörvi hefur starfað hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í áratug. Hann hefur tekið virkan þátt í þróun stefnu Sjóðsins um hvernig er hægt að beita ólíkum hagstjórnartækjum saman á samræmdan hátt, ekki síst til að bregðast við ytri áföllum og sveiflum í fjármagnshreyfingum (e. Integrated Policy Framework, IPF). Tjörvi hefur veitt fjölda landa ráðgjöf á þessu sviði, þ.m.t. löndum í fjármálakreppu og jafnvel stríði. Hann var áður hagfræðingur hjá Seðlabankanum í um áratug.
Næstu dagsetningar: „Viðburðir sí“
| Dagsetning | Titill | Lýsing | Aðgerðir |
|---|---|---|---|
| 15. desember 2026 | Málstofa: Stöðugleikamyntir - bera þær nafn með rentu? |