Meginmál

Leiðbeinandi tilmæli um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

ATH: Ekki í gildi
Númer 2/2008
Flokkur Leiðbeinandi tilmæli
Dagsetning 29. september 2008
Starfsemi Lánafyrirtæki, Rekstrarfélög verðbréfasjóða, Sparisjóðir, Vátryggingafélög, Verðbréfafyrirtæki, Viðskiptabankar, Lífeyrissjóðir, Greiðslustofnanir, Rafeyrisfyrirtæki, Vátryggingamiðlanir, Vátryggingamiðlarar, Verðbréfamiðlanir
Viðbótarupplýsingar

Fjármálaeftirlitið setur fram leiðbeinandi tilmæli um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka í starfsemi eftirlitsskyldra aðila. Tilmælin hafa að geyma leiðbeiningar Fjármálaeftirlitsins um það hvernig eftirlitsskyldir aðilar sem falla undir lög nr. 64/2006, um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, með síðari breytingum, skuli framfylgja ákvæðum þeirra. Tilgangur tilmælanna er að skýra ýmis atriði laganna án þess að um tæmandi talningu sé að ræða.

Löggjöf þá sem fjallar um viðfangsefni tilmælanna er að finna í lögum nr. 64/2006 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, með síðari breytingum og reglugerð nr. 626/2006 um meðhöndlun tilkynninga um ætlað peningaþvætti. Skyldum skv. lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka má skipta í þrjá meginþætti:

  1. könnun á áreiðanleika viðskiptamanna við upphaf viðskiptasambands og við einstök viðskipti og varðveislu afrita af persónuskilríkjum ásamt öðrum viðskiptagögnum,
  2. athugun á öllum grunsamlegum viðskiptum og tilkynning til lögreglu, hafi grun ekki verið eytt við könnun,
  3. að sjá til þess að innri starfsþættir séu í góðu horfi, s.s. innra eftirlit, skriflegar reglur, kerfi til að bregðast skjótt við fyrirspurnum lögreglu og yfirvalda, að hugað sé að þjálfun starfsmanna og tilnefningu á sérstökum ábyrgðarmanni úr hópi stjórnenda.

Efni þessara tilmæla er fallið úr gildi og voru þau leyst af hólmi með tilmælum nr. 3/2011 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Skjöl

Tengt efni

Reglugerðir

Leiðbeinandi tilmæli

Efni sem vísar hingað