Fara beint í Meginmál

Tilgangur og markmið

Mannauðsstefna Seðlabanka Íslands byggir á gildum bankans sem eru heilindi, áræðni, auðmýkt og fagmennska. Tilgangur stefnunnar er að byggja upp sterka liðsheild og menningu þar sem starfsfólk hefur tækifæri til að þróast og beita fagmennsku í starfsumhverfi sem styður við áræðni, auðmýkt og heilindi í athöfnum og ákvörðunartöku. Þannig stuðlar stefnan að því að bankinn nái markmiðum sínum og sé vaxandi vinnustaður með árangursríkum hætti.

Umfang

Mannauðsstefnan tekur til alls starfsfólks Seðlabanka Íslands og skal vera leiðarljós fyrir stjórnendur og starfsfólk í daglegum störfum þess. Stefnan nær til allra þátta mannauðsmála bankans, þ. á m. ráðninga, starfsþróunar, starfsumhverfis, velferðar og jafnréttis.

Megináherslur

Til að ná markmiðum mannauðsstefnu bankans er lögð megináhersla á eftirfarandi sex lykilþætti:

Sterk liðsheild
Seðlabankinn leggur áherslu á að hafa ávallt á að skipa öflugri liðsheild og hafa í sínum röðum metnaðarfullt starfsfólk með fjölbreytta þekkingu og reynslu sem vinnur saman að því að ná framúrskarandi árangri. Byggja skal ákvarðanir um ráðningar, starfsþróun og framgang starfsfólks í starfi á málefnalegum og faglegum sjónarmiðum. Lögð er áhersla á að velja til stjórnunar öfluga leiðtoga sem ganga á undan með góðu fordæmi og hafa metnað til að styðja við teymin sín með gildi og markmið bankans að leiðarljósi. Skýr leiðsögn, markviss upplýsingamiðlun og uppbyggileg endurgjöf stjórnenda skapar starfsumhverfi og menningu sem einkennist af trausti og styður við umbætur og vöxt.

Þekking og þróun
Seðlabankinn er þekkingarstofnun sem reiðir sig á hugvit og þekkingu starfsfólks. Lögð er áhersla á að starfsfólk viðhaldi þekkingu sinni, nýti hana vel í störfum sínum og styðji með því áherslur framsækins banka. Starfsumhverfið skal þannig styðja við að starfsfólk fái tækifæri til að efla hæfni sína, miðla þekkingu af auðmýkt og sýna áræðni í að takast á við ný verkefni eða aukna ábyrgð og þannig þróast og vaxa í starfi.

Fagleg vinnubrögð
Seðlabankinn leggur áherslu á árangursdrifna vinnustaðamenningu sem einkennist af fagmennsku, heilindum og skilvirkum vinnubrögðum til að tryggja markvissa og góða ákvarðanatöku. Leggja skal áherslu á að starfsfólk beiti samræmdum vinnubrögðum og fylgi lögum, reglum og faglegum viðmiðum. Starfsfólk bankans skal gæta þess að halda trúnað um störf sín og sinna þeim af alúð og heilindum.

Framsækni
Seðlabankinn leitast við að skapa vinnustaðamenningu sem styður við áræðni og umbótahugsun starfsfólks, gagnrýna hugsun og vilja til að gera sífellt betur. Bankinn leggur áherslu á sálfélagslegt öryggi með því að skapa umhverfi þar sem starfsfólk er óhrætt við að tjá skoðanir sínar og takast á málefnalega en sýni jafnframt auðmýkt gagnvart sjónarmiðum annarra.

Virðing og vellíðan
Starfsumhverfi bankans skal styðja við andlega og líkamlega vellíðan starfsfólks. Bankinn leggur sinn metnað í að bjóða upp á sveigjanlegt starfsumhverfi sem stuðlar að heilbrigðu jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Þá hvetur bankinn starfsfólk þess til að huga að eigin heilsu og líferni. Í samskiptum skal starfsfólk sýna hvort öðru virðingu og tillitssemi. Einelti, áreitni og/eða ofbeldi er ekki undir neinum kringumstæðum liðið og skal starfsfólk tilkynna um hvers kyns slíka háttsemi í samræmi við stefnu og verk-lag bankans gegn einelti, áreitni og/eða ofbeldi.

Jafnrétti
Ævinlega skal gæta jafnréttissjónarmiða með það að markmiði að tryggja öllum jöfn tækifæri, sbr. jafnréttisstefnu bankans. Allt starfsfólk skal metið að verðleikum, óháð kyni, aldri, þjóðerni, trú eða öðrum ómálefnalegum sjónarmiðum. Bankinn hefur sett sér stefnu til að tryggja að launaákvarðanir séu byggðar á málefnalegum sjónarmiðum og þær feli ekki í sér beina eða óbeina mismunun vegna kyns eða annarra atriða.

Framkvæmd og ábyrgð

Framkvæmdastjóri mannauðs og menningar ber ábyrgð á innleiðingu og framkvæmd mannauðsstefnu bankans í umboði seðlabankstjóra og í samstarfi við framkvæmdastjóra bankans.
Yfirstjórn og starfsfólk bankans bera sameiginlega ábyrgð að framfylgja stefnunni og móta traustan og vaxandi vinnustað.
Mannauðsstefna þessi skal yfirfarin og endurskoðuð á þriggja ára fresti eða oftar ef þörf krefur.