Umsækjandi skal leggja fram umsókn í samræmi við þær kröfur sem koma fram í I. viðauka við framselda reglugerð (ESB) 2017/1943, sbr. reglur nr. 982/2023.
Umsóknina skal leggja fram á því sniðmáti sem er að finna í I. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/1945, sbr. reglur nr. 982/2023. Umsækjandi skal enn fremur veita upplýsingar með því að svara spurningalista í þjónustugátt um stjórnarmenn sína, og breytingar á stjórnarmönnum, í samræmi við II. og III. viðauka reglugerðar (ESB) 2017/1945 .