Könnun á væntingum markaðsaðila
Seðlabanki Íslands kannaði væntingar markaðsaðila dagana 7. til 9. nóvember sl. Leitað var til 36 markaðsaðila á skuldabréfamarkaði, þ.e. banka, lífeyrissjóða, verðbréfa- og fjárfestingarsjóða, verðbréfamiðlana, fyrirtækja með starfsleyfi til eignastýringar og tryggingafélaga. Svör fengust frá 33 aðilum og var svarhlutfallið því 92%.
Helstu niðurstöður
Niðurstöður könnunarinnar gefa til kynna að markaðsaðilar vænti þess að verðbólga verði að meðaltali 9,2% á fjórða fjórðungi þessa árs. Þá telja þeir að verðbólga hjaðni áfram og verði 5,1% að ári liðnu og 4% eftir tvö ár. Þetta er minni verðbólga en markaðsaðilar væntu í ágústkönnuninni en þá gerðu þeir ráð fyrir að hún yrði 5,8% að ári liðnu. Verðbólguvæntingar til fimm ára voru 3,6% og lækkuðu lítillega frá síðustu könnun en verðbólguvæntingar til tíu ára stóðu í stað í 3,5%. Könnunin gefur til kynna að markaðsaðilar vænti þess að gengi krónunnar hækki lítillega á næstu misserum og að gengi evru gagnvart krónu verði 145 krónur eftir eitt ár.
Miðað við miðgildi svara í könnuninni búast markaðsaðilar við því að meginvextir bankans hafi náð hámarki í 5,75% og haldist óbreyttir þar til þeir taka að lækka á þriðja fjórðungi næsta árs og verði 5,25% eftir eitt ár og 4,5% að tveimur árum liðnum. Þetta eru lægri vextir en markaðsaðilar bjuggust við í könnun bankans í ágúst sl.
Töluverð breyting var á afstöðu svarenda til taumhalds peningastefnunnar en þeim fækkaði sem telja að taumhaldið sé of laust og er hlutfall þeirra 18% samanborið við 67% í ágúst. Þá fjölgaði þeim sem telja taumhaldið hæfilegt í 67% úr 29% í ágúst. Um 15% svarenda telja taumhaldið of þétt sem er nokkur aukning frá því í ágúst þegar hlutfallið var 4%.
Dreifing svara markaðsaðila um væntingar til verðbólgu var minni en í síðustu könnun þegar horft er til næstu fjórðunga en aðeins meiri þegar horft er til tveggja og fimm ára. Dreifing svara um væntingar til vaxta breyttist lítið milli kannana.
Markaðsaðilar voru einnig spurðir um þróun fasteignamarkaðarins á næstu tólf mánuðum. Fjórðungur svarenda tók fram að þau telji að raunverð lækki á næstu tólf mánuðum og um þriðjungur að nafnverð lækki. Þá telja um 60% svarenda að velta muni minnka næsta árið.
Sjá hér gögn um væntingar markaðsaðila:
Könnun á væntingum markaðsaðila í nóvember 2022
Sjá sérstaka upplýsingasíðu um væntingar markaðsaðila hér á vef Seðlabankans