Seðlabanki Íslands hefur gefið út rannsóknarritgerðina „What sets the trend? The evolution and drivers of Icelandic trend inflation“ eftir Bjarna G. Einarsson, hagfræðing á sviði hagfræði og peningastefnu, og Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóra peningastefnu.
Í ritgerðinni eru Bayesískar-aðferðir notaðar til að meta líkan af undirliggjandi leitniþætti verðbólgu á Íslandi. Líkanið gerir einnig ráð fyrir að breytileiki leitni- og sveifluþáttar verðbólgunnar, sem og hversu þrálát frávik verðbólgu frá leitniþætti hennar eru, geti tekið breytingum yfir tíma. Niðurstöðurnar sýna að þrátt fyrir að leitniþáttur verðbólgunnar hafi minnkað og orðið stöðugri frá miðjum níunda áratugnum, endurspeglar hjöðnun mældrar verðbólgu á þessu tímabili að mestu leyti minni breytileika og tregðu í sveifluhluta verðbólgunnar. Jafnframt benda niðurstöðurnar til þess að hlutur leitniþáttarins í að skýra þróun mældrar verðbólgu hafi aukist verulega á undanförnum árum. Greinin leiðir einnig í ljós að leitniþátturinn heldur áfram að vera sveiflukenndari en í öðrum iðnríkjum sem að mestu leyti endurspeglar lausari kjölfestu verðbólguvæntinga hér á landi og samspil þessarar lausu kjölfestu og stórra alþjóðlegra framboðsskella á undanförnum árum.
Sjá ritið hér:
Sjá fleiri rannsóknarritgerðir hér: