Almennt
Árið 2024 samþykkti Evrópusambandið tilskipun (ESB) 2025/2 um breytingu á tilskipun 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga, svonefndri Solvency II-tilskipun. Breytingarnar eru almennt nefndar endurskoðun Solvency II-regluverksins eða Solvency II Review.
Solvency II er meginregluverk Evrópska efnahagssvæðisins um fjárhagslegan styrk og varúðareftirlit með vátrygginga- og endurtryggingafélögum. Regluverkið tekur meðal annars til mats á eignum og vátryggingaskuld, gjaldþolskröfu og lágmarksfjármagni, stjórnkerfis og áhættustýringar, eigin áhættu- og gjaldþolsmats, gagnaskila, opinberrar upplýsingagjafar og eftirlits með vátryggingasamstæðum.
Solvency II-regluverkið byggist á því að kröfur til hvers félags taki mið af eðli, umfangi og margbreytileika þeirrar áhættu sem það tekur. Gjaldþolskrafan hækkar að öðru jöfnu eftir því sem áhætta félags er meiri. Félag þarf því að hafa næga viðurkennda gjaldþolsliði til að mæta kröfunni og skuldbindingum sínum gagnvart vátryggingartökum og rétthöfum.
Núgildandi Solvency II-regluverk hefur einkum verið innleitt hér á landi með lögum nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi, lögum nr. 60/2017 um vátryggingasamstæður ásamt reglugerðum og reglum sem settar hafa verið á grundvelli þeirra.
Markmið endurskoðunarinnar er meðal annars að:
- efla beitingu hlutfallsreglunnar þannig að kröfur taki betur mið af stærð, áhættusniði og margbreytileika félaga,
- gera mat vátryggingaskuldar og útreikning gjaldþolskröfu áhættunæmari og draga úr óþarfa skammtímasveiflum í gjaldþolsstöðu,
- einfalda gagnaskil og opinbera upplýsingagjöf,
- styrkja eftirlit með samstæðum og starfsemi yfir landamæri,
- taka betur tillit til sjálfbærni-, loftslags-, lausafjár- og kerfisáhættu, og
- auðvelda vátryggingafélögum að fjárfesta til langs tíma án þess að dregið sé úr vernd vátryggingartaka.
Endurskoðunin var samþykkt samhliða tilskipun (ESB) 2025/1 um endurreisn og skilameðferð vátrygginga- og endurtryggingafélaga, svonefndri IRRD-tilskipun. Um er að ræða tvær sjálfstæðar tilskipanir með mismunandi gildissvið og markmið.
Gildistaka og innleiðing á Íslandi
Tilskipun (ESB) 2025/2 var birt í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins 8. janúar 2025 og tók gildi innan ESB 28. janúar 2025. Aðildarríki ESB skulu hafa samþykkt og birt nauðsynleg innleiðingarákvæði eigi síðar en 29. janúar 2027 og beita þeim frá 30. janúar 2027.
Tilskipunin hefur ekki enn verið tekin upp í EES-samninginn. Drög að ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um upptöku hennar voru send framkvæmdastjórn ESB 1. júlí 2026 og eru til skoðunar hjá ESB og EFTA-ríkjunum.
Tilskipunin hefur því ekki verið innleidd í íslenskan rétt. Innleiðingin mun væntanlega kalla á breytingar á lögum nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi og lögum nr. 60/2017 um vátryggingasamstæður, auk breytinga á reglugerðum og reglum sem settar hafa verið á grundvelli laganna. Gildistaka hér á landi mun ráðast af framvindu málsins innan EES og íslenskri lagasetningu.
Helstu breytingar
Endurskoðun Solvency II-regluverksins nær til fjölmargra þátta. Hér á eftir er stutt yfirlit yfir helstu breytingarnar. Nánari útfærsla þeirra kemur fram í framseldum gerðum framkvæmdastjórnar ESB, tæknistöðlum og viðmiðunarreglum Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnunarinnar, EIOPA.
Gildissvið og hlutfallsregla
Fjárhæðarmörk fyrir undanþágu frá gildissviði Solvency II vegna smæðar munu hækka, meðal annars í 15 milljónir evra í árlegum brúttó bókfærðum iðgjöldum og 50 milljónir evra í vátryggingaskuld, að uppfylltum öðrum skilyrðum. Tekinn er upp nýr flokkur félaga: small and non-complex undertakings (SNCU). Félag sem, telur sig uppfylla skilgreind áhættumiðuð skilyrði getur tilkynnt það eftirlitsstjórnvaldi. Geri eftirlitsstjórnvaldið ekki rökstudda athugasemd innan tiltekins frests telst félagið hafa verið flokkað sem SNCU. Slík félög eiga að jafnaði sjálfkrafa rétt á nánar skilgreindum einföldunum.
Vátryggingaskuld og ráðstafanir vegna langtímaábyrgða
Breytingar eru gerðar á mati vátryggingaskuldar, meðal annars á framreikningi áhættulauss vaxtaferils, áhættuálagi og reglum um aðlögun vegna óstöðugleika (e. volatility adjustment) og aðlögun vegna samræmingar (e. matching adjustment). Markmiðið er meðal annars að auka áhættunæmi og draga úr óþarfa áhrifum skammtímasveiflna á gjaldþolsstöðu.
Gjaldþolskrafa og langtímafjárfestingar
Skilyrði fyrir ívilnandi meðferð langtímafjárfestinga í hlutabréfum eru endurskoðuð og breytingar gerðar á einstökum þáttum staðalformúlunnar, meðal annars vegna hlutabréfa-, vaxta- og verðbréfunaráhættu. Nánari útfærsla er í framseldri reglugerð (ESB) 2026/269.
Stjórnkerfi, eigið áhættu- og gjaldþolsmat og sjálfbærniáhætta
Kröfur til stjórnkerfis og áhættustýringar eru skýrðar og eigið áhættu- og gjaldþolsmat (ORSA) skal í auknum mæli taka mið af þjóðhags- og fjármálamarkaðsþróun og, eftir atvikum, kerfisáhættu.
Félög skulu jafnframt meta loftslagsáhættu og, ef hún er veruleg, greina áhrif langtímasviðsmynda. Auk þess eru gerðar kröfur um áætlanir vegna fjárhagslegrar áhættu sem leiðir af sjálfbærniþáttum.
Þjóðhagsvarúð og lausafjáráhætta
Með breytingunum er þjóðhagsvarúðarþáttur Solvency II styrktur og félög þurfa eftir atvikum að taka meira mið af áhrifum ákvarðana sinna á fjármálakerfið.
Félög skulu almennt hafa áætlun um stýringu lausafjáráhættu og eftirlitsstjórnvöld fá auknar heimildir til að bregðast við verulegum veikleikum. Við sérstakar aðstæður geta úrræði meðal annars falist í takmörkun arðgreiðslna og annarra útgreiðslna og, sem lokaúrræði, tímabundinni stöðvun innlausnarréttinda samkvæmt líftryggingarsamningum.
Gagnaskil, opinber upplýsingagjöf og endurskoðun
Skýrslu félags um gjaldþol og fjárhagslega stöðu (SFCR) verður skipt í stuttan og aðgengilegan hluta fyrir vátryggingartaka og rétthafa og ítarlegri hluta fyrir sérfræðinga og markaðsaðila. Jafnframt verða breytingar á reglubundinni eftirlitsskýrslu (RSR) og annarri reglulegri upplýsingagjöf.
Tilskipunin gerir jafnframt að meginreglu ráð fyrir óháðri endurskoðun á Solvency II-efnahagsreikningi sem birtur er í SFCR, með tilteknum undanþágum.
Eftirlit með starfsemi yfir landamæri og vátryggingasamstæðum
Samstarf eftirlitsstjórnvalda vegna umtalsverðrar starfsemi yfir landamæri er styrkt og reglur um afmörkun, stjórnkerfi, gjaldþol og upplýsingagjöf vátryggingasamstæðna skýrðar.
Algengar spurningar
Hér er fjallað nánar um nokkur atriði sem líklegt er að hafi sérstaka þýðingu fyrir íslensk vátryggingafélög og eftirlit.
Áhrif á íslenskan vátryggingamarkað
Endanleg áhrif breytinganna hér á landi ráðast af upptöku tilskipunarinnar og afleiddra gerða í EES-samninginn, mögulegum EES-aðlögunum og útfærslu við innleiðingu í íslenskan rétt.
Bráðabirgðamat Seðlabankans er að ólíklegt sé að íslensk vátryggingafélög uppfylli skilyrði fyrir flokkun SNCU. Einstakar hlutfallsráðstafanir fyrir önnur félög gætu engu að síður haft þýðingu hér á landi, enda eru íslensk félög almennt lítil í evrópskum samanburði.
Endurskoðað Solvency II-regluverk gerir ráð fyrir að félög sem ekki teljast SNCU geti sótt um fyrirfram samþykki Seðlabankans til að beita tilteknum hlutfallsráðstöfunum. Seðlabankinn metur hverja umsókn sérstaklega út frá áhættusniði félagsins og skilyrðum viðkomandi ráðstöfunar. Samþykki er því ekki sjálfvirkt. Seðlabankinn hefur á þessu stigi ekki tekið afstöðu til þess hvort og þá hvaða ráðstafanir kunni að eiga við um einstök íslensk vátryggingafélög. Breytingar á vátryggingaskuld og einstökum þáttum staðalformúlunnar geta haft áhrif á gjaldþolsstöðu félaga. Jafnframt þarf að gera ráð fyrir breytingum á stjórnkerfi, ORSA, lausafjárstýringu, loftslags- og sjálfbærniáhættu, gagnaskilum og endurskoðun SFCR.
Afleiddar gerðir framkvæmdastjórnarinnar og viðmiðunarreglur EIOPA
Tilskipun (ESB) 2025/2 geymir endurskoðaðar meginreglur Solvency II-regluverks. Fjölmörg atriði eru útfærð nánar í afleiddum gerðum framkvæmdastjórnar ESB, tæknistöðlum og viðmiðunarreglum EIOPA.
Mikilvægust þeirra er framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/269 frá 29. október 2025, sem breytir framseldri reglugerð (ESB) 2015/35. Þar eru meðal annars útfærðar breytingar á vátryggingaskuld, áhættulausum vaxtaferli, staðalformúlu, hlutfallsreglu, gagnaskilum, opinberri upplýsingagjöf og gjaldþoli vátryggingasamstæðna.
Reglugerðinni er ætlað að gilda innan ESB frá 30. janúar 2027, samhliða breytingunum á Solvency II-tilskipuninni.
EIOPA birti 15. júlí 2026 nýjar og endurskoðaðar viðmiðunarreglur og drög að tæknistöðlum vegna endurskoðunarinnar. Þær taka meðal annars til lausafjáráhættu, áhættuálags, gagnaskila og opinberrar upplýsingagjafar og gjaldþols samstæðna.
EIOPA hefur jafnframt endurskoðað ýmsar eldri viðmiðunarreglur til samræmis við breytt regluverk. Viðmiðunarreglurnar eiga að koma til framkvæmda innan ESB frá 30. janúar 2027. Sama á við um tæknistaðlana, verði drögin samþykkt.
Afleiddar gerðir þurfa eftir atvikum að vera teknar upp í EES-samninginn og innleiddar hér á landi með reglugerðum ráðherra eða reglum Seðlabankans. Viðmiðunarreglur EIOPA eru teknar upp í eftirlitsframkvæmd eftir því sem við á og upplýst um upptökuna með dreifibréfi.
Gagnlegir hlekkir
- Tilskipun (ESB) 2025/2 á vef EUR-Lex.
- Staða tilskipunarinnar samkvæmt EES-gagnagrunni EFTA.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/269.
- Staða reglugerðar (ESB) 2026/269 samkvæmt EES-gagnagrunni EFTA.
- Yfirlit framkvæmdastjórnar ESB yfir afleiddar gerðir vegna Solvency II.
- Yfirlit EIOPA yfir viðmiðunarreglur og drög að tæknistöðlum vegna endurskoðunar Solvency II.
- Lög nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi.
- Lög nr. 60/2017 um vátryggingasamstæður.
- Reglugerð nr. 55/2022 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um vátryggingastarfsemi og vátryggingasamstæður.