Fara beint í Meginmál

Seðlabanki Íslands hefur eftirlit með aðilum á verðbréfamarkaði, svo sem kauphöllum og verðbréfamiðstöðvum. Starfsemi þessara aðila er m.a. ætlað að tryggja að viðskipti á verðbréfamarkaði gangi hratt og örugglega sem og að tryggja skráningu eignarréttinda.

Þessir aðilar eru mikilvægir og því er nauðsynlegt að eftirlit með þeim sé öflugt og skilvirkt. Þá felst eftirlit með verðbréfamörkuðum jafnframt í eftirliti með verðbréfastarfsemi fjármálafyrirtækja, sem veita ýmsa þjónustu til viðskiptavina á verðbréfamarkaði, og framkvæmd viðskipta.

Viðskiptavettvangur

Viðskiptavettvangur er samheiti yfir skipulega markaði, markaðstorg fjármálagerninga (MTF) og skipuleg markaðstorg (OTF). Um starfsemi þeirra gilda lög nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.

Skipulegur markaður

Skipulegur markaður leiðir saman kaupendur og seljendur fjármálagerninga samkvæmt fyrirfram ákveðnum og ófrávíkjanlegum reglum. Aðeins aðilar sem hafa starfsleyfi sem rekstraraðilar markaða (kauphallir) mega reka slíkan markað. Á Íslandi rekur Kauphöll Íslands einn skipulegan markað, aðalmarkað Kauphallarinnar.

Um starfsemi skipulegra markaða gilda meðal annars kröfur um örugg og áreiðanleg viðskiptakerfi, aðgang að markaðinum og töku fjármálagerninga til viðskipta. Kröfurnar eiga að stuðla að sanngjörnum, skipulegum og skilvirkum viðskiptum.

Rekstraraðilar markaða skulu fylgjast með viðskiptum og tilboðum á mörkuðum sínum og því að útgefendur uppfylli skyldur um upplýsingagjöf. Seðlabanki Íslands hefur eftirlit með því að rekstraraðilarnir uppfylli lögbundnar skyldur sínar.

Markaðstorg fjármálagerninga (MTF)

Markaðstorg fjármálagerninga (MTF) leiðir saman kaupendur og seljendur fjármálagerninga samkvæmt fyrirfram ákveðnum og ófrávíkjanlegum reglum. Rekstraraðilar markaða og verðbréfafyrirtæki geta starfrækt slíkt markaðstorg að fengnum viðeigandi heimildum.

Kauphöll Íslands starfrækir markaðstorgið First North Iceland. Hlutabréfahluti þess, First North Growth Market Iceland, er skráður sem vaxtarmarkaður fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Hlutverk vaxtarmarkaða er að auðvelda smærri fyrirtækjum aðgang að fjármagni með kröfum sem taka mið af þörfum þeirra og vernd fjárfesta.

Um töku verðbréfa til viðskipta og upplýsingaskyldu útgefenda á MTF gilda að hluta aðrar kröfur en á skipulegum markaði. Kröfur um töku til viðskipta eru almennt vægari, en útgefendur þurfa að uppfylla reglur viðkomandi markaðstorgs og þær lagakröfur sem um þá gilda, meðal annars um birtingu innherjaupplýsinga og bann við markaðssvikum.

Seðlabanki Íslands hefur eftirlit með því að rekstur markaðstorgsins sé í samræmi við lög og reglur, meðal annars um viðskiptakerfi og eftirlit með viðskiptum og tilboðum.

Verðbréfamiðstöðvar

Verðbréfamiðstöðvar gegna mikilvægu hlutverki við rafræna útgáfu fjármálagerninga, skráningu eignarréttinda og uppgjör verðbréfaviðskipta. Örugg og skilvirk starfsemi þeirra styður við trausta innviði verðbréfamarkaðarins og dregur úr áhættu við uppgjör viðskipta.

Um starfsemina gilda lög nr. 7/2020 um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignaskráningu fjármálagerninga. Lögin taka meðal annars til starfsemi verðbréfamiðstöðva og reikningsstofnana, uppgjörs viðskipta og réttaráhrifa rafrænnar eignaskráningar. Markmið þeirra er að draga úr kerfisáhættu og stuðla að fjármálastöðugleika.

Tvær verðbréfamiðstöðvar eru með starfsemi á Íslandi:

  • Verðbréfamiðstöð Íslands sem hefur starfsleyfi og lýtur eftirliti Seðlabanka Íslands.
  • Nasdaq verðbréfamiðstöð sem er útibú verðbréfamiðstöðvar með staðfestu í Lettlandi. Eftirlit með Nasdaq CSD SE er á ábyrgð eftirlitsstjórnvalda í Lettlandi og tekur Seðlabanki Íslands þátt í samstarfi eftirlitsaðila um starfsemi félagsins.

Eftirlit með viðskiptum á verðbréfamarkaði

Seðlabanki Íslands hefur eftirlit með viðskiptum og tilboðum á verðbréfamarkaði. Eftirlitið miðar að því að stuðla að heilindum á markaði, eðlilegri verðmyndun og vernd fjárfesta. Í því felst meðal annars að greina og rannsaka háttsemi sem kann að fela í sér markaðssvik og hafa eftirlit með því að markaðsaðilar sinni lögbundnum skyldum sínum.

Við eftirlitið styðst bankinn meðal annars viðskiptagögn, tilkynningar um grunsamleg fyrirmæli og viðskipti og aðrar upplýsingar sem hann aflar sér við athuganir. Gögnin gera bankanum kleift að greina viðskiptamynstur, skoða háttsemi aðila á markaði og meta hvort tilefni sé til frekari rannsóknar.

Daglegar viðskiptaskýrslur, svonefndar TRS II-skýrslur, eru mikilvæg upplýsingauppspretta við eftirlitið. Tilkynningarskyldir aðilar skila þeim samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 600/2014 um markaði fyrir fjármálagerninga (MiFIR). Skýrslurnar innihalda meðal annars upplýsingar um fjármálagerninga, aðila að viðskiptum, verð, magn og viðskiptatíma. Þær nýtast við eftirlitið óháð því hvort grunur hefur vaknað um brot eða ekki.

Aðilar sem sjá um eða framkvæma viðskipti í atvinnuskyni gegna einnig mikilvægu hlutverki við að greina möguleg markaðssvik. Samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR) skulu þeir hafa skilvirkt fyrirkomulag, kerfi og verklag til að greina og tilkynna grunsamleg fyrirmæli og viðskipti. Tilkynna skal án tafar til lögbærs eftirlitsstjórnvalds þegar réttmætur grunur vaknar um innherjasvik, markaðsmisnotkun eða tilraun til slíkrar háttsemi. Skyldan nær bæði til fyrirmæla og viðskipta innan og utan viðskiptavettvanga.

Rekstraraðilar markaða og verðbréfafyrirtæki sem starfrækja viðskiptavettvang skulu jafnframt hafa skilvirkt fyrirkomulag, kerfi og verklag til að fyrirbyggja og greina innherjasvik, markaðsmisnotkun og tilraunir til slíkrar háttsemi. Þeim ber að tilkynna lögbæru eftirlitsstjórnvaldi viðskiptavettvangsins án tafar um grunsamleg fyrirmæli og viðskipti, þar á meðal afturköllun eða breytingu á þeim.

Seðlabankinn hefur eftirlit með því að þessum skyldum sé sinnt og að viðskiptagögn sem honum berast séu rétt, fullnægjandi og berist innan tilskilins frests. Við athuganir getur bankinn aflað frekari upplýsinga og gagna. Komi í ljós brot getur hann beitt lögbundnum eftirlitsúrræðum og viðurlögum eða vísað máli til rannsóknar lögreglu, eftir því sem við á.

Tilkynningar um grunsamleg viðskipti

Þá hvíla þær skyldur á eftirlitsskyldum aðilum sem sinna þjónustu í verðbréfaviðskiptum og aðilum á verðbréfamarkaði að þeir fylgist með hegðun á markaðnum og tilkynni Seðlabankanum ef grunur vaknar um óeðlilega hegðun eða viðskipti.

Þá getur almenningur sent ábendingar um grunsamleg viðskipti eða háttsemi er varðar verðbréfamarkaðinn í gegnum uppljóstrunarsíðu Seðlabankans.

Samstarf við Kauphöll Íslands

Seðlabankinn og Kauphöll Íslands eiga í nánu samstarfi um eftirlit með markaði. Á Kauphöllinni hvíla ríkar lagaskyldur um eftirlit með mörkuðum sem hún starfrækir, s.s. eftirlit með markaðssvikum (innherjasvikum og markaðsmisnotkun) og upplýsingaskyldu útgefenda en Kauphöllin rekur rafrænt eftirlitskerfi með viðskiptum sem á að tryggja eðlilega verðmyndun á markaði og að markaðsaðilar starfi eftir lögum og reglum.