Nýtt eintak Fjármála, vefrits Fjármálaeftirlitsins, er komið út. Meðal efnis má nefna greinina: Hefur Ísland náð ásættanlegum árangri við úrvinnslu útlána í vanskilum? eftir Stefán Þór Björnsson, sérfræðing í greiningum hjá Fjármálaeftirlitinu. Enn fremur er í blaðinu grein sem nefnist Neytendavernd á fjármálamarkaði sem er skrifuð af þeim G. Áslaugu Jósepsdóttur og Valdimar Gunnari Hjartarsyni en þau eru bæði lögfræðingar á eftirlitssviði Fjármálaeftirlitsins.
Til viðbótar þessu fjallar Elvar Guðmundsson, sérfræðingur í greiningum, um birtingu á niðurstöðum á eiginfjárkröfum samkvæmt SREP. Enn fremur fjallar Rúnar Guðmundsson um fjölgun málskota til úrskurðarnefndar í vátryggingamálum en hann er formaður úrskurðarnefndarinnar. Þá er í blaðinu stutt viðtal við Unni Gunnarsdóttur, forstjóra Fjármálaeftirlitsins, en hún tók fyrst við því starfi fyrir rúmu ári.
Fjármál má nálgast hér.
Nýtt eintak Fjármála komið út 25. mars 2013
ATH: Þessi grein er frá 25. mars 2013 og er því orðin meira en 5 ára gömul.