Fara beint í Meginmál

Könnun á væntingum markaðsaðila 14. ágúst 2026

Seðlabanki Íslands kannaði væntingar markaðsaðila dagana 10. til 12. ágúst sl. Leitað var til 38 markaðsaðila á skuldabréfamarkaði, þ.e. banka, lífeyrissjóða, verðbréfa- og fjárfestingarsjóða, verðbréfamiðlana, fyrirtækja með starfsleyfi til eignastýringar og tryggingafélaga. Svör bárust frá 24 aðilum og var svarhlutfallið því 63%.

Helstu niðurstöður

Niðurstöður könnunarinnar gefa til kynna að markaðsaðilar vænti meiri verðbólgu á þessu ári en í síðustu könnun í maí. Þeir gera þó ráð fyrir að verðbólga hjaðni tiltölulega hratt á næsta ári og miðað við miðgildi svara eru væntingar þeirra til verðbólgu eftir eitt ár óbreyttar milli kannana, eða 3,9%. Markaðsaðilar vænta þess að verðbólga verði 3,5% eftir tvö ár og að meðaltali 3,3% á næstu fimm árum sem er lítils háttar hækkun frá síðustu könnun. Markaðsaðilar gera enn ráð fyrir að verðbólga verði 3% að meðaltali á næstu tíu árum. Þá búast markaðsaðilar við því að gengi krónunnar gagnvart evru verði lítillega lægra eftir eitt ár en það var þegar könnunin var framkvæmd.

Markaðsaðilar vænta þess að meginvextir Seðlabankans verði hærri en þeir gerðu ráð fyrir í maí. Miðað við miðgildi svara í könnuninni gera þeir ráð fyrir að meginvextir hækki um 0,25 prósentur á núverandi ársfjórðungi í 8% en í síðustu könnun áttu þeir von á að vextir yrðu 7,75%. Líkt og í síðustu könnun gera markaðsaðilar ráð fyrir því að vextir taki að lækka á ný á fyrsta fjórðungi næsta árs. Þá búast þeir við því að meginvextir verði um 6,25% eftir tvö ár en í síðustu könnun gerðu þeir ráð fyrir að vextir yrðu 6%.

Þriðjungur svarenda taldi taumhald peningastefnunnar of laust og hækkaði hlutfallið lítillega frá síðustu könnun þegar það var 27%. Hlutfall þeirra sem töldu taumhaldið of þétt hækkaði einnig frá síðustu könnun og mældist 50% núna en var 42% í maí. Á móti fækkaði þeim sem töldu taumhaldið hæfilegt í 17% úr 31% í maí.

Heildardreifing svara markaðsaðila um væntingar til verðbólgu eftir eitt og tvö ár jókst milli kannana en minnkaði til annarra tímalengda. Heildardreifing svara um væntingar um þróun meginvaxta minnkaði einnig milli kannana til flestra tímalengda.