Fara beint í Meginmál

Fra­m­kvæmda­stjórn ESB ósk­ar á ný eft­ir sjón­armiðum hag­hafa um sa­m­keppn­is­hæfni evrópska banka­ker­f­isins 18. ágúst 2026

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) kynnti nýverið aðgerðir sem miða að samþættara, skilvirkara og samkeppnishæfara bankakerfi. Markmiðið er að styrkja getu evrópskra banka til að fjármagna hagvöxt, nýsköpun og önnur stefnumarkandi verkefni, samhliða því að viðnámsþróttur bankakerfisins og fjármálastöðugleiki verði áfram tryggðir. Seðlabanki Íslands vakti athygli á þessari vinnu á fyrri stigum, sbr. frétt frá 26. mars sl.

Í fyrsta lagi er stefnt að aukinni samþættingu bankamarkaðarins og að draga úr hindrunum fyrir starfsemi banka yfir landamæri. Meðal annars á að auðvelda bankasamstæðum að nýta eigið fé og laust fé á skilvirkari hátt milli ríkja ESB. Jafnframt hyggst framkvæmdastjórnin leggja til einfaldara sameiginlegt innstæðutryggingakerfi innan Evrópska bankasambandsins (e. European Banking Union) og stuðla að samræmdari framkvæmd reglna um aðgerðir gegn peningaþvætti og neytendavernd.

Í öðru lagi hyggst framkvæmdastjórnin endurmeta hvernig alþjóðleg viðmið  um varfærniskröfur í bankastarfsemi, svonefndir Basel III-staðlar, eru innleidd innan ESB með það að markmiði að taka betur mið af sérkennum evrópsks bankakerfis og meðalhófi. Þar kemur meðal annars til skoðunar hvort tilteknar reglur takmarki útlánagetu banka um of og hvort breyta þurfi varúðarreglum og reglum um stjórnarhætti með hliðsjón af stærð, viðskiptalíkani og starfsemi evrópskra banka.

Í þriðja lagi er stefnt að einfaldara og gagnsærra regluverki og minni stjórnsýslubyrði, án þess að dregið verði úr viðnámsþrótti bankakerfisins. Þar er meðal annars horft til einföldunar eiginfjárkrafna, aukinnar samræmingar eiginfjárauka í þjóðhagsvarúðarskyni, einföldunar MREL-krafna og ferla vegna skilameðferðar og aukins meðalhófs í kröfum til lítilla og einfaldra banka.

Framkvæmdastjórn ESB áformar að leggja fram tillögu að löggjöf á fyrsta ársfjórðungi 2027 og geta hagaðilar komið sjónarmiðum sínum á framfæri við framkvæmdastjórnina til 17. september nk., sjá nánar á vef framkvæmdastjórnarinnar.