Fara beint í Meginmál

Fundargerð fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands 23.-24. mars 2026 29. apríl 2026

Fjármálastöðugleikanefnd
Fjármálastöðugleikanefnd

Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands tekur ákvarðanir um beitingu stjórntækja bankans er varða fjármálastöðugleika. Í fjármálastöðugleika felst að fjármálakerfið geti staðist áföll í efnahagslífi og á fjármálamörkuðum, miðlað lánsfé og greiðslum og dreift áhættu með viðhlítandi hætti.

Á fundi nefndarinnar 23. og 24. mars 2026 fékk hún kynningu á stöðu og horfum í efnahagsmálum og fyrir fjármálastöðugleika. Nefndin ræddi helstu áhættuþætti fjármálastöðugleika á Íslandi og alþjóðlega þróun. Farið var yfir þróun á innlendum og erlendum fjármálamörkuðum, meðal annars áhrifin og mögulegar afleiðingar af stríðinu við Persaflóa. Fjárfestingarstefnur lífeyrissjóða fyrir árið 2026 voru kynntar nefndinni. Staðan á fasteignamarkaði var í brennidepli, með áherslu á íbúðalánamarkaðinn, byggingageirann og þróunina frá því að nefndin gerði breytingar á lánþegaskilyrðum bankans í kjölfar svokallaðra vaxtadóma undir lok síðasta árs. Fjallað var um nýjan vísi um kaupgetu heimila til íbúðakaupa. Skuldsetning heimila og fyrirtækja var til umræðu og viðnámsþróttur fjármálafyrirtækja, þ. á m. eiginfjár- og lausafjárstaða þeirra. Nefndin fékk kynningu á fyrstu áhrifum af innleiðingu CRR III-reglugerðar Evrópusambandsins á áhættugrunn bankanna. Þá fékk nefndin kynningu á vinnu Seðlabankans við að auka viðnámsþrótt fjármálainnviða og tímaáætlun aðgerða, þ. á m. að koma á netlausum kortaviðskiptum. Einnig fékk nefndin kynningu á nýlegri viðbúnaðaræfingu sem tók á ímynduðu rekstraratviki hjá fjármálainnviðum. Þá var rætt um umgjörð tryggingarverndar innstæðna hér á landi.