Seðlabanki Íslands hefur hafið reglulega birtingu gagna um gjaldeyrisviðskipti innlendra viðskiptabanka með íslensku krónuna. Gögnin sýna mánaðarlega veltu á gjaldeyrismarkaði og ná til bæði kaupa og sölu íslenskra króna fyrir erlenda gjaldmiðla í stundarviðskiptum (e.spot). [1] Veltan er sundurliðuð eftir helstu mótaðilahópum og gjaldmiðlum.
Seðlabankinn hefur um langt skeið birt gögn um daglega veltu á millibankamarkaði með gjaldeyri, þar sem viðskiptavakar og Seðlabanki Íslands eru þátttakendur. Viðskipti á millibankamarkaði með gjaldeyri eru hins vegar aðeins lítill hluti af heildarviðskiptum með íslensku krónuna. Ný gögn koma því til með að veita betri innsýn inn í gjaldeyrismarkaðinn hér á landi og heildstæðari mynd af veltunni.
Gögnin verða birt 15. hvers mánaðar. Sjá nánar hér: Gjaldeyrisviðskipti.
Mótaðilaflokkun og gjaldmiðlaskipting nýrra gagna
Skilaaðilar gagnanna eru viðskiptabankarnir fjórir, Arion banki hf., Íslandsbanki hf., Landsbankinn hf. og Kvika banki hf. Gögnin innihalda öll gjaldeyriviðskipti þeirra með krónu í stundarviðskiptum, þar á meðal viðskipti sem þeir eiga hver við annan á millibankamarkaði. Stundarviðskipti eru hér skilgreind sem viðskipti með tvo gjaldmiðla þar sem gengi er ákveðið á viðskiptadegi og uppgjör fer fram innan tveggja viðskiptadaga. Veltan er birt í íslenskum krónum.
Gögnin eru sundurliðuð eftir eftirfarandi mótaðilahópum:
- Innlendir aðilar, aðrir en fjármálafyrirtæki
- Viðskiptavakar á millibankamarkaði
- Seðlabanki Íslands
- Lífeyrissjóðir
- Önnur innlend fjármálafyrirtæki
- Erlendir aðilar
Þá eru gögnin einnig sundurliðuð eftir þeim gjaldmiðlum sem skipt er fyrir íslenskar krónur:
- Evrur (EUR)
- Bandaríkjadalir (USD)
- Aðrir gjaldmiðlar
Á fyrstu sjö mánuðum ársins nam heildarvelta í stundarviðskiptum innlendra viðskiptabanka þar sem íslenskri krónu var skipt fyrir annan gjaldmiðil alls 2.498 ma.kr. Mótaðilar bankanna keyptu erlendan gjaldeyri af bönkunum fyrir 1.294 ma.kr. en seldu erlendan gjaldeyri fyrir 1.204 ma.kr. Bilið þar á milli stafar m.a. af því að afleiðuviðskipti eru ekki talin með í veltunni. Mánaðarleg heildarvelta nam 357 ma.kr. að meðaltali sem er um 7% af landsframleiðslu síðasta árs.
Mest viðskipti voru með evrur fyrstu sjö mánuði ársins 2026, eða 56% af heildarveltunni. Viðskipti með bandaríkjadal voru 31% en viðskipti með alla aðra gjaldmiðla voru 13%.
Velta á millibankamarkaði með gjaldeyri
Þátttakendur á formlegum millibankamarkaði með gjaldeyri, samkvæmt reglum nr. 600/2020, eru viðskiptavakarnir þrír Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn ásamt Seðlabanka Íslands. Í nýju gögnunum má finna veltu viðskiptavakanna á millibankamarkaði undir liðnum Viðskiptavakar á millibankamarkaði. Seðlabankinn mun engu að síður áfram birta daglega upplýsingar um veltu á millibankamarkaði með gjaldeyri, með tveggja daga töf.
Í nýju gögnunum er birt bæði kaup- og söluhlið viðskipta. Það stafar af því að þegar einn viðskiptavaki kaupir gjaldeyri fyrir krónur selur annar viðskiptavakinn gjaldeyri fyrir samsvarandi fjárhæð. Til þess að velta sé samanburðarhæf við daglegu veltutölurnar þarf því að deila í heildarveltu í slíkum viðskiptum með tveimur.
[1] Afleiðuviðskipti með krónuna, s.s. framvirk viðskipti og skiptasamningar, eru ekki hluti af gagnabirtingunni.