Fara beint í Meginmál

Gögn fyrir gjaldeyrisviðskipti skilaaðila í stundarviðskiptum eru birt mánaðarlega eftir fyrirfram ákveðinni birtingaráætlun kl. 09:00 á birtingardegi.

Gögnin eru aðgengileg á mánaðarlegri tíðni frá janúar 2026.

Nýjustu tölur eru bráðabirgðatölur.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is

Ítarleg gögn fyrir gjaldeyrisviðskipti má nálgast á tímaraðaformi í Gagnabankanum

Fjárhæðir eru í milljónum króna (m.kr.)

Gögnum um gjaldeyrisviðskipti er safnað í því skyni að fylgjast með veltu á gjaldeyrismarkaði.

Lagagrundvöllur

Gagnasöfnunin er á grundvelli reglna nr. 861/2022 um almenna tilkynningarskyldu skv. lögum um gjaldeyrismál, sem settar eru á grundvelli 8. mgr. 10. gr. laga nr. 70/2021 um gjaldeyrismál.

Gjaldeyrisviðskipti

Hugtakið gjaldeyrisviðskipti vísar hér til allra gjaldeyrisviðskipta viðskiptabankanna í stundarviðskiptum þar sem íslenskri krónu er skipt fyrir erlendan gjaldmiðil.

Endurskoðun gagna

Gögn eru endurskoðuð komi fram leiðréttingar frá skilaaðilum.

Stundargjaldeyrisviðskipti

Stundargjaldeyrisviðskipti eru skilgreind sem viðskipti með tvo gjaldmiðla þar sem gengi er ákvarðað á viðskiptadegi og uppgjör fer fram eftir tvo eða færri daga.

Viðskiptavaki á millibankamarkaði með gjaldeyri

Viðskiptavakar á gjaldeyrismarkaði samkvæmt reglum nr. 600/2020 eru þrír; Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn.

Önnur innlend fjármálafyrirtæki

Viðskipti allra innlendra fjármálafyrirtækja annarra en viðskiptavaka á millibankamarkaði, lífeyrissjóða og Seðlabanka Íslands. Viðskipti á milli Kviku banka og hinna viðskiptabankanna eru í þessum flokki þar sem Kvika er ekki viðskiptavaki samkvæmt reglum nr 600/2020.

Undir önnur innlend fjármálafyrirtæki í birtingu á gjaldeyrisviðskiptum falla:
• Innlánsstofnanir aðrar en viðskiptavakar
• Tryggingafélög
• Lánafyrirtæki
• Fjárfestingabankar
• Greiðslukortafyrirtæki
• Fjármögnunarleigur
• Verðbréfafyrirtæki
• Verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóðir

Innlendur aðili / Erlendur aðili

Innlendur aðili merkir sérhvern einstakling sem hefur lögheimili á Íslandi og lögaðila sem skráður er til heimilis á Íslandi, án tillits til ríkisfangs. Undanþegnir búsetuskilyrðum eru námsmenn og starfsmenn sendiráða. Þannig teljast íslenskir námsmenn og skyldulið þeirra sem búa erlendis vera innlendir aðilar og erlendir sendiráðsstarfsmenn teljast til erlendra aðila. Erlendur aðili merkir alla aðra aðila en innlenda.

gjaldeyrisviðskipti
16. nóvember 2026
9:00
Uppfærslutíðni: Mánaðarleg - Október 2026
gjaldeyrisviðskipti
15. desember 2026
9:00
Uppfærslutíðni: Mánaðarleg - Nóvember 2026
gjaldeyrisviðskipti
15. janúar 2027
9:00
Uppfærslutíðni: Mánaðarleg - Desember 2026
gjaldeyrisviðskipti
15. febrúar 2027
9:00
Uppfærslutíðni: Mánaðarleg - Janúar 2027
gjaldeyrisviðskipti
15. mars 2027
9:00
Uppfærslutíðni: Mánaðarleg - Febrúar 2027
Hagtölur
TitillTíðniNýjastTímabilNæstFlokkurGagnabanki
RaungengiMánaðarleg6. nóvemberOktóber 20267. desemberMarkaðir
Efnahagur Seðlabanka ÍslandsMánaðarleg6. nóvemberOktóber 20267. desemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
LífeyrissjóðirMánaðarleg5. nóvemberSeptember 20267. desemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
GjaldeyrismarkaðurMánaðarleg4. nóvemberOktóber 20263. desemberMarkaðir
KrónumarkaðurMánaðarleg4. nóvemberOktóber 20263. desemberMarkaðir
Staða markaðsverðbréfaMánaðarleg30. októberSeptember 202630. nóvemberMarkaðir
VerðbréfafjárfestingMánaðarleg29. októberSeptember 202630. nóvemberGreiðslujöfnuður við útlönd
Önnur fjármálafyrirtækiMánaðarleg27. októberSeptember 202627. nóvemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóðirMánaðarleg27. októberSeptember 202627. nóvemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Lánasjóðir ríkisinsMánaðarleg27. októberSeptember 202627. nóvemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
InnlánsstofnanirMánaðarleg23. októberSeptember 202625. nóvemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
TryggingafélögMánaðarleg19. októberÁgúst 202617. nóvemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Útboð verðbréfaMánaðarleg19. októberSeptember 202617. nóvemberMarkaðir
GreiðslumiðlunMánaðarleg16. októberSeptember 202617. nóvemberMarkaðir
GjaldeyrisviðskiptiMánaðarleg15. októberSeptember 202616. nóvemberMarkaðir
GjaldeyrisforðiMánaðarleg9. októberSeptember 202610. nóvemberGreiðslujöfnuður við útlönd
Bein fjárfestingÁrleg21. september202511. marsGreiðslujöfnuður við útlönd
Fjármálareikningar fjármálafyrirtækjaÁrsfjórðungsleg7. september2. ársfjórðungur 20267. desemberEfnahagsreikningar fjármálafyrirtækja
Erlendar skuldirÁrsfjórðungsleg3. september2. ársfj. 20263. desemberGreiðslujöfnuður við útlönd
Greiðslujöfnuður við útlöndÁrsfjórðungsleg3. september2. ársfj. 20263. desemberGreiðslujöfnuður við útlönd
Erlend staða þjóðarbúsinsÁrsfjórðungsleg3. september2. ársfj. 20263. desemberGreiðslujöfnuður við útlönd