Í maí sl. hóf Seðlabanki Íslands reglubundin gjaldeyriskaup á millibankamarkaði, samtals 6 milljónir evra á viku, samanber tilkynningu bankans frá 8. maí sl. Til þessa hefur bankinn keypt erlendan gjaldeyri að jafnvirði 15 ma.kr. Meginmarkmiðið með kaupunum er að mæta tilfallandi gjaldeyrisþörf ríkisjóðs og viðhalda þar með stærð gjaldeyrisforðans. Nægur gjaldeyrisforði gegnir veigamiklu hlutverki í að stuðla að stöðugleika og viðnámsþrótti þjóðarbúsins.
Þar sem gjaldeyrisþörf ríkissjóðs hefur reynst meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir hefur Seðlabankinn nú ákveðið að auka kaupin í 12 milljónir evra í hverri viku frá og með 15. september nk.
Seðlabankinn mun því kaupa 3 milljónir evra skömmu eftir opnun markaðarins á þriðjudögum, miðvikudögum, fimmtudögum og föstudögum. Bankinn endurmetur gjaldeyriskaupin eftir því sem aðstæður gefa tilefni til en að óbreyttu er fyrirhugað að þeim ljúki fimmtudaginn 15. október nk.
Seðlabankinn telur ekki að kaupin muni hafa teljandi áhrif á gengi krónunnar við núverandi aðstæður. Bankinn mun eftir sem áður beita viðskiptum á gjaldeyrismarkaði til þess að draga úr skammtímasveiflum í gengi krónunnar eins og hann telur tilefni til.