Á fjórða ársfjórðungi 2025 var 38 ma.kr. halli á viðskiptajöfnuði við útlönd eða 3% af landsframleiðslu. Vöruskiptajöfnuður mældist neikvæður um 73,4 ma.kr. en 49,4 ma.kr. afgangur var á þjónustujöfnuði. Afgangur af frumþáttatekjum nam 1 ma.kr. en 15 ma.kr. halli var á rekstrarframlögum. Hrein erlend staða þjóðarbúsins batnaði um 2% af landsframleiðslu milli fjórðunga og mælist því jákvæð um 44,2% af landsframleiðslu.
Halli á viðskiptajöfnuði fyrir árið 2025 í heild nam 177,7 ma.kr. samanborið við 148,5 ma.kr. árið á undan. Halli á vöruskiptajöfnuði var 385,1 ma.kr. en afgangur á þjónustujöfnuði var 273,1 ma.kr. Halli af frumþáttatekjum nam 10,9 ma.kr. en 54,7 halli var á rekstrarframlögum.