Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/2631 frá 22. nóvember 2023 um evrópsk græn skuldabréf og valkvæða skýrslugjöf um skuldabréf sem eru markaðssett sem umhverfislega sjálfbær og sjálfbærnitengd skuldabréf (hér eftir vísað til reglugerðarinnar sem EuGBR) tók að meginstefnu gildi innan Evrópusambandsins hinn 21. desember 2024. Drög að frumvarpi hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda en samkvæmt þingmálaskrá fyrir löggjafarþing 2026-2027 er stefnt að því að leggja fram frumvarp til laga um evrópsk græn skuldabréf til að innleiða reglugerðina í október 2026.
Reglugerðin mælir fyrir um samræmdar kröfur fyrir útgefendur skuldabréfa sem kjósa að nota merkinguna „evrópsk græn skuldabréf“ eða „EuGB“ fyrir skuldabréf sín. Reglugerðin kemur á fót kerfi til að skrá og hafa eftirlit með ytri úttektaraðilum evrópskra grænna skuldabréfa og kveður á um valkvæð sniðmát fyrir birtingu upplýsinga vegna skuldabréfa sem markaðssett eru sem umhverfislega sjálfbær eða sjálfbærnitengd skuldabréf innan ESB.
Markmið reglugerðarinnar er að stuðla að þróun markaðar fyrir græn skuldabréf, þó með þeim hætti að röskun á núverandi mörkuðum fyrir græn skuldabréf sé lágmörkuð, laða útgefendur ríkisskuldabréfa að útgáfu EuGB og samtímis koma til móts við sérþarfir þeirra, samræma upplýsingagjöf til að auðvelda samanburð og draga úr hættu á grænþvotti. Reglugerðin er hluti af Grænu samkomulagi framkvæmdastjórnar ESB og er ætlað að auka fjárfestingartækifæri og greiða fyrir greiningu á umhverfislega sjálfbærum fjárfestingum með skýrum merkingum.
Reglugerðin nær til útgefenda skuldabréfa óháð því hvort þeir eru innan eða utan ESB, opinberir- eða einkaaðilar. Reglugerðin tekur líka til verðbréfunarskuldabréfa.
Samspil EuGBR við regluverk ESB á sviði sjálfbærni
EuGBR myndar órjúfanlega heild með öðru regluverki ESB á sviði sjálfbærni en Taxonomy reglugerðin er hornsteinn regluverks á sviði sjálfbærni, ekki síst í tilviki EuGBR.
Án tæmandi talningar tengist flokkunarkerfi Taxonomy eftirfarandi regluverki á sviði sjálfbærni; SFDR, CSRD, ESRS,ESGRR,ESAP,CSDDD,PAB og EuGBR. Verkefni sem eru fjármögnuð með evrópskum grænum skuldabréfum skulu samræmast viðmiðum Taxonomy og verður fjallað nánar um þau hér að neðan.
Sjóðir sem fjárfesta í evrópskum grænum skuldabréfum munu geta nýtt skýrslugjöf samkvæmt EuGBR til að ákvarða hlutfall fjárfestinga í safni sínu sem samræmist flokkunarkerfi Taxonomy. Við fjárfestingaráðgjöf verður hægt að nýta sértækar upplýsingar sem veittar eru á grundvelli EuGBR til þess að koma til móts við sjálfbærnióskir viðskiptavina samkvæmt MiFID II, sbr. lög nr. 115/2021um markaði fyrir fjármálagerninga. Jafnframt getur EuGBR haft áhrif á upplýsingagjöf við lýsingu skuldabréfa samkvæmt reglugerð (ESB) 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði. Þannig má segja að EuGBR virki sem brú á milli upplýsinga samkvæmt flokkunarkerfi Taxonomy og fjárfesta og ráðgjafa.
Hvað eru evrópsk græn skuldabréf, skuldabréf sem eru markaðssett sem umhverfislega sjálfbær og sjálfbærnitengd skuldabréf ?
Skuldabréf getur eingöngu fengið merkingu sem „evrópskt grænt skuldabréf“ eða „EuGB“ ef útgefendur þess uppfylla ákveðnar kröfur sem eru reifaðar hér að neðan. Útgefendum skuldabréfa er ekki skylt að uppfylla kröfur EuGBR nema þeir vilji nota framangreindar merkingar, sbr. a. lið 1. gr. EuGBR.
Skuldabréf sem er markaðssett sem umhverfislega sjálfbært er skuldabréf þar sem útgefandi gefur fjárfestum skuldbindingu eða annars konar samningsbundna staðhæfingu áður en samningur er gerður um að ágóða skuldabréfsins sé ráðstafað til atvinnustarfsemi sem stuðlar að umhverfismarkmiði, sbr. 5. tl. 2. gr. EuGBR. Umhverfismarkmið eru tilgreind í 9. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/852 um að koma á ramma til að greiða fyrir sjálfbærri fjárfestingu (Taxonomy), sbr. lög nr. 25/2023 um upplýsingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar (Taxonomy).
Sjálfbærnitengd skuldabréf hafa fjárhagslega eða kerfislæga eiginleika sem eru breytilegir eftir því hvort útgefandinn nær fyrir fram skilgreindum markmiðum um umhverfislega sjálfbærni, sbr. 6. tl. 2. gr. EuGBR.
Kröfur sem eru gerðar til evrópskra grænna skuldabréfa
Merkingin „evrópsk græn skuldabréf“ eða „EuGB“ skal aðeins notuð um skuldabréf sem uppfylla kröfur sem eru settar fram í 4. gr. EuGBR. Þar segir að andvirði evrópskra grænna skuldabréfa skuli nýtt að fullu í samræmi við kröfur flokkunarkerfis fyrir gjalddaga skuldabréfanna. Með kröfum flokkunarkerfis er átt við viðmiðanir fyrir umhverfislega sjálfbæra atvinnustarfsemi sem eru settar fram í 3. gr. Taxonomy. Andvirðinu má ráðstafa til eins eða fleiri af eftirfarandi flokkum;
· fastafjármuna sem eru ekki fjáreignir,
· fjárfestingargjalda (CapEx),
· rekstrarkostnaðar (OpEx) sem var stofnað til eigi síðar en þremur árum fyrir útgáfu,
· fjáreigna sem urðu til eigi síðar en fimm árum frá útgáfu,
· eigna og útgjalda heimila.
Framangreint lýsir áfangaskiptri leið (e. gradual approach), eða því þegar andvirði af EuGB fer í umhverfislega sjálfbær verkefni. Útgefendum er jafnframt heimilt að fara eignasafnsleið (e. portfolio approach), þ.e. að nýta andvirði af einu eða fleiri útistandandi evrópskum grænum skuldabréfum til eignasafns fastafjármuna eða fjáreigna í samræmi við kröfur flokkunarkerfisins. Ef útgefendur nýta andvirði í samræmi við „eignasafnsleið“ skulu þeir sýna fram á það í úthlutunarskýrslum sem um getur í 11. gr. EuGBR, að heildarvirði eignanna í eignasafni þeirra sé meira en heildarvirði útistandandi eignasafns þeirra í evrópskum grænum skuldabréfum.
Ytri úttektaraðili leggur mat á hvort útgefandi teljist uppfylla skilyrði 4. gr. um úthlutun andvirðis, sbr. 10. og 11. gr. EuGBR. Lögbært yfirvald hefur eftirlit með því að útgefendur hafi tryggt að ytri úttektaraðili hafi framkvæmt framangreint mat fyrir útgáfu skuldabréfs með jákvæðu áliti, sbr. 10. og 44. gr. EuGBR.
Evrópsk græn skuldabréf eiga almennt að fjármagna starfsemi sem uppfyllir allar kröfur flokkunarkerfisins. Hins vegar er heimilt að nota allt að 15% af andvirðinu í annað, í samræmi við 5. gr. EuGBR. Þetta á annars vegar við um starfsemi þar sem tæknileg viðmið flokkunarkerfisins hafa ekki enn verið skilgreind, og hins vegar um verkefni tengd alþjóðlegum stuðningi, svo sem loftslagsfjármögnun eða þróunaraðstoð. Skilyrði er að þessi starfsemi uppfylli eftir bestu getu meginreglur um að valda ekki verulegu umhverfistjóni. Einnig þurfa útgefendur að upplýsa skýrt um slíka ráðstöfun og hversu stór hluti andvirðisins fer í þessi verkefni, í samræmi við 10. gr. EuGBR.
Útgefendum er heimilt að draga útgáfukostnað frá andvirði evrópsku grænu skuldabréfanna áður en það er nýtt samkvæmt framangreindu.
Samkvæmt 3. mgr. 4. gr. EuGBR hafa ríki og sveitarfélög meiri sveigjanleika og mega einnig nota andvirði í skattaívilnanir, styrki, aðfanganotkun, rekstrartilfærslur hjá hinu opinbera, núverandi alþjóðlega samvinnu eða annars konar opinber útgjöld, að því tilskildu að andvirðið sé nýtt í samræmi við kröfur flokkunarkerfisins.
Í EuGBR er jafnframt sett fram sú krafa fyrir auðkenningunni „evrópsk græn skuldabréf“ eða „EuGB“ að útgefandi skuli birta lýsingu samkvæmt reglugerð (ESB) 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, sbr. 2. gr. laga nr. 14/2020, og skal lýsingin uppfylla ákveðin skilyrði sem eru tilgreind í 14. gr. EuGBR. Í skilyrðunum felst að skuldabréfin þurfi að vera tilgreind sem „evrópsk græn skuldabréf“ eða „EuGB“ í allri lýsingunni, og tilgreint að skuldabréfið sé gefið út í samræmi við EuGBR í þeim hluta lýsingar sem inniheldur upplýsingar um nýtingu andvirðis. Þrátt fyrir þetta er heimilt að nota merkinguna vegna skuldabréfa sem ríki, sveitarfélög, opinberar alþjóðlegar stofnanir eða seðlabankar gefa út eða ábyrgjast. Útgefendum er heimilt að vísa til upplýsingablaðs skv. 10. gr. EuGBR í stað þess að endurtaka þær í lýsingunni, þó þannig að samantekt um fjárfestingargjaldaáætlun komi fram í lýsingu (sjá nánar um fjárfestingargjaldaáætlun í undirkaflanum Nánar um fjárfestingargjöld (CapEX)). Í samantektinni skal tilgreina mikilvægustu verkefnin sem útgefandi hefur annast, mæld sem hluti af heildar fjárfestingargjöldum sem falla undir fjárfestingargjaldaáætlun og skal tilgreina tegund, geira, staðsetningu og áætlað lokaár þessara verkefna.
Eftirfarandi undirkaflar útskýra nánar einstaka flokka í 4. gr.:
Tæknileg matsviðmið samkvæmt Taxonomy og framseldum gerðum hennar kveða á um hvaða atvinnustarfsemi telst sjálfbær, en ekki er um tiltekna eignaflokka sem slíka að ræða. Hugtakið fastafjármunir í 4. gr. EuGBR tekur því til efnislegra og óefnislegra eigna sem eru ekki fjáreignir, sem notaðar eru í rekstri, að því marki sem þær tengjast atvinnustarfsemi sem uppfyllir viðeigandi tæknileg matsviðmið. Sem dæmi um efnislega fastafjármuni má nefna byggingar sem uppfylla kröfur um orkunýtni, sbr. lið 7.1 og 7.2 í I viðauka við framseldu loftslagsgerðina (ESB) 2021/2139 og vindmyllur vegna raforkuframleiðslu úr vindorku, sbr. lið 4.3 í sama viðauka. Til óefnislegra fastafjármuna geta t.d. talist hugbúnaður, réttindi og leyfi sem tengjast atvinnustarfseminni, s.s. leyfi til þess að reisa og reka vindorkuver.
Fjáreign er skilgreind í reglugerðinni sem skuld eða eigið fé, eða sambland af þessu. Fjallað er um nýtingu andvirðis af fjáreignum í 6. gr. EuGBR.
Til fjárfestingargjalda falla t.a.m. kaup og uppsetning á orkuskiptainnviðum, t.d. á sólarsellum til eigin orkuframleiðslu, kostnaður við endurbætur á fasteignum til að draga úr orkunotkun þeirra eða kaup á nýjum tækjum sem nýta auðlindir betur eða menga minna.
Þegar andvirði er ráðstafað til fjárfestingargjalda samkvæmt 4. gr. EuGBR þarf að leggja mat á hvort þau teljist hæf samkvæmt flokkunarkerfi Taxonomy. Um það gilda nánari reglur, m.a. um teljara, sbr. lið 1.1.2.2 í viðauka I við framselda reglugerð (ESB) 2021/2178. Með teljara er átt við hluta af heild (nefnara). Samkvæmt framangreindum lið 1.1.2.2 tekur teljarinn til þeirra fjárfestingargjalda sem eru;
í tengslum við eignir eða ferli sem tengjast atvinnustarfsemi sem fellur að flokkunarkerfinu,
fjárfestingargjaldaáætlun um að útvíkka atvinnustarfsemi sem fellur að flokkunarkerfinu eða til að gera atvinnustarfsemi sem flokkunarkerfið nær yfir kleift að falla að flokkunarkerfinu.
í tengslum við kaup á afurðum frá atvinnustarfsemi sem fellur að flokkunarkerfinu og einstakar ráðstafanir sem gera markstarfseminni (e. target activity) kleift að verða lágkolefnisstarfsemi eða leiða til samdráttar í losun gróðurhúsalofttegunda, einkum starfsemi sem skráð er í liðum 7.3 til 7.6 í I. viðauka við framseldu loftslagsgerðina, auk annarrar atvinnustarfsemi sem skráð er í framseldum gerðum sem mælt er fyrir um í 10. - 15. gr. Taxonomy og að því tilskildu að slíkum ráðstöfunum sé komið í framkvæmd og tilbúnar til notkunar innan 18 mánaða.
Samkvæmt 2. mgr. liðar 1.1.2.2. skal fjárfestingargjaldaáætlun í framangreindum b. lið uppfylla eftirfarandi skilyrði;
áætlunin miðar annaðhvort að því að útvíkka atvinnustarfsemi fyrirtækis sem fellur að flokkunarkerfinu eða að því að uppfæra atvinnustarfsemi sem flokkunarkerfið nær yfir til að fella hana að flokkunarkerfinu innan fimm ára,
áætlunina skal birta á samtölustigi eftir atvinnustarfsemi og samþykkt af stjórn fyrirtækja sem ekki eru á fjármálamarkaði annaðhvort beint eða með framsali.
Ef tæknilegu matsviðmiðunum sem eru sett í framseldum gerðum Taxonomy er breytt áður en fjárfestingargjaldaáætluninni er lokið eru tilgreindir frestir til uppfærslu áætlana í 3. mgr. liðar 1.1.2.2.
Ef fjárfestingargjaldaáætlunin uppfyllir ekki skilyrðin sem um getur í annarri málsgrein liðar 1.1.2.2 skal uppfæra fyrri lykilárangursmælikvarða sem tengjast fjárfestingargjöldum.
Teljarinn skal einnig innihalda þann hluta fjárfestingargjaldanna fyrir aðlögun á atvinnustarfsemi að loftslagsbreytingum í samræmi við II. viðauka við framseldu loftslagsgerðina (ESB) 2021/2139. Teljarinn skal innihalda sundurliðun á þeim hluta fjárfestingargjaldanna sem úthlutað er til verulegs framlags til aðlögunar að loftslagsbreytingum.
Ef andvirði EuGB er ráðstafað til fjárfestingargjalda eða rekstrarkostnaðar skal útgefandinn birta fjárfestingargjaldaáætlun. Í fjárfestingargjaldaáætluninni skal tilgreina frest, sem á sér stað áður en evrópska skuldabréfið nær fullum gjalddaga, þar sem öll fjármagns- og rekstrargjöld sem fjármögnuð eru með evrópska skuldabréfinu skulu samræmd flokkunarkerfinu. Útgefandi skal, innan 60 daga frá þeim eindaga sem tilgreindur er í fjárfestingargjaldaáætluninni, fá mat frá ytri úttektaraðila á hvernig fjármagns- og rekstrargjöld, sem falla undir fjárfestingargjaldaáætlun og eru fjármögnuð með andvirði af evrópska græna skuldabréfinu, falla að flokkunarkerfinu.
Til rekstrarkostnaðar fellur t.a.m. viðhald og viðgerðir á vindmyllum og kostnaður við þjálfun starfsfólks til að sinna sérhæfðu eftirliti með sólarsellum fyrirtækis.
Þegar andvirði er ráðstafað til rekstrarkostnaðar samkvæmt 4. gr. EuGBR þarf að leggja mat á hvort hann sé hæfur samkvæmt flokkunarkerfi Taxonomy. Um það gilda nánari reglur, m.a. um teljara, sbr. lið 1.1.3.2 í I. viðauka framseldrar reglugerðar (ESB) 2021/2178. Samkvæmt framangreindum lið jafngildir teljarinn þeim hluta rekstrarkostnaðarins sem tekinn er með í nefnarann fyrir eitthvað af eftirfarandi;
kostnaður í tengslum við eignir eða ferli sem tengjast atvinnustarfsemi sem fellur að flokkunarkerfinu, þ.m.t. þjálfun og önnur aðlögun mannauðs, og beinn kostnaður vegna rannsókna og þróunar sem ekki er færður til eignar,
kostnaður sem er hluti af fjárfestingargjaldaáætluninni um að útvíkka atvinnustarfsemi sem fellur að flokkunarkerfinu eða til að gera atvinnustarfsemi sem flokkunarkerfið nær yfir kleift að falla að flokkunarkerfinu innan fyrirframákveðins tímaramma eins og mælt er fyrir um í annarri undirgrein þessa liðar (1.1.3.2).
kostnaður í tengslum við kaup á afurðum frá atvinnustarfsemi sem fellur að flokkunarkerfinu og einstakar ráðstafanir sem gera markstarfseminni kleift að verða lágkolefnisstarfsemi eða leiða til samdráttar í losun gróðurhúsalofttegunda, sem og einstakar ráðstafanir vegna endurnýjunar bygginga eins og fram kemur í framseldu gerðunum sem samþykktar eru skv. 10. - 15. gr. Taxonomy og að því tilskildu að slíkum ráðstöfunum sé komið í framkvæmd og tilbúnar til notkunar innan 18 mánaða.
Samkvæmt 2. mgr. liðs 1.1.3.2 í sama viðauka skal fjárfestingargjaldaáætlunin sem um getur í fyrstu málsgrein þessa liðar (1.1.3.2) uppfylla skilyrðin sem tilgreind eru í lið 1.1.2.2. og eru reifuð hér að ofan.
Rannsóknar- og þróunarkostnaður sem þegar hefur verið færður í lykilárangursmælikvarðann fyrir fjárfestingargjöld skal ekki talinn sem rekstrargjöld – þ.e. ekki má tvítelja.
Teljarinn skal einnig ná yfir þann hluta rekstrargjalda sem ætlaður er fyrir aðlögun á atvinnustarfsemi að loftslagsbreytingum í samræmi við II. viðauka við framseldu loftslagsgerðina. Teljarinn skal innihalda sundurliðun á þeim hluta rekstrargjalda sem úthlutað er til verulegs framlags til aðlögunar að loftslagsbreytingum.
Ef rekstrargjöldin eru ekki veruleg að því er varðar viðskiptalíkan fyrirtækja sem ekki eru á fjármálamarkaði skulu þessi fyrirtæki:
vera undanþegin frá útreikningnum á teljara lykilárangursmælikvarðans fyrir rekstrargjöld í samræmi við lið 1.1.3.2 og birta þann teljara sem verandi jafnt og núll,
birta heildarvirði á nefnaranum fyrir rekstrargjöld sem reiknaður er út í samræmi við lið 1.1.3.1,
útlista hvers vegna rekstrargjöld eru ekki veruleg að því er varðar viðskiptalíkan þeirra.
Tilvísun til eigna og útgjalda heimila í 4. gr. er ekki nánar skilgreind í reglugerðinni. Af ákvæðinu verður þó ráðið að um er að ræða heimilaða ráðstöfun andvirðis skuldabréfa til eigna eða útgjalda sem tengjast heimilum sem endanlegum notendum, enda uppfylli viðkomandi eign eða útgjöld heimilisins tæknileg matsviðmið flokkunarkerfis Taxonomy.
Þetta tekur ekki til útgjalda útgefandans sjálfs í eigin rekstri sem falla eftir atvikum undir aðra liði ákvæðisins, svo sem fjárfestingargjöld (CapEx) eða rekstrarkostnað (OpEx), heldur til tilvika þar sem andvirði skuldabréfa er ráðstafað til verkefna eða eigna utan efnahagsreiknings útgefandans, þ.e. hjá heimilum sem endanlegum notendum. Sem dæmi má nefna græn íbúðalán til einstaklinga vegna kaupa á orkunýtinni íbúð, þar sem íbúðin uppfyllir tæknileg matsviðmið flokkunarkerfisins.
Valfrjáls upplýsingagjöf: Umhverfislega sjálfbær og sjálfbærnitengd skuldabréf
Útgefendur skuldabréfa sem eru markaðssett sem umhverfislega sjálfbær eða sjálfbærnitengd skuldabréf og kjósa að uppfylla ekki kröfur EuGB, geta notað staðlað sniðmát í stað þess að hver og einn útgefandi útbúi sína eigin skýrslu til fjárfesta. Útgefendur geta nýtt sniðmátið til að sýna fram á umhverfisáhrif sín. Notkun slíkra sniðmáta ætti að vera einfaldari í notkun fyrir útgefendur og ætti að auðvelda fjárfestum samanburð.
Notkun sniðmátanna er þó valkvæð og áfram er heimilt að markaðssetja skuldabréf sem umhverfislega sjálfbær eða sjálfbærnitengd án þess að nota þau, að því gefnu að útgefandi noti ekki heitið evrópsk græn skuldabréf eða skammstöfunina EuGB. Útgefendum er áfram frjálst að fylgja öðrum stöðlum, s.s. Green bond principles, útgefnum af ICMA. Þótt ekki sé skylt að nota sniðmátin þurfa útgefendur að gæta þess að markaðssetning og heiti skuldabréfsins sé ekki villandi. Í þessu samhengi er bent á að þegar rekstrarfélög og -aðilar verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða, fjárfesta í grænum eða umhverfislega sjálfbærum skuldabréfum sem eru ekki EuGB, þá skulu þeir taka mið af liðum 16 - 18 í viðmiðunarreglum ESMA um heiti sjóða, þ.e. meta hvort atvinnustarfsemi sú sem skuldabréfið fjármagnar brjóti gegn útilokunarreglum sem þar er kveðið á um og ganga úr skugga um að útgefandinn fylgi lágmarkskröfum um góða stjórnarhætti.
Leiðbeiningar og sniðmát fyrir valkvæða upplýsingagjöf fyrir útgáfu skuldabréfa sem eru markaðssett sem umhverfislega sjálfbær eða sjálfbærnitengd skuldabréf er birt með Commisson Communication c/2025/2277. Sniðmát fyrir valkvæða reglubundna upplýsingagjöf eftir útgáfu er birt í undirgerð EuGBR (ESB) 2025/753, sem hefur ekki enn öðlast gildi hérlendis.Í þeim tilvikum sem útgefendur upplýsa í sniðmáti fyrir útgáfu að þeir hyggist birta reglubundnar upplýsingar eftir útgáfu, sbr. 2. mgr. 20. gr. EuGBR, þ.e. að þeir ætli sér að nota valkvæð sniðmát EuGBR, ber útgefanda að birta upplýsingar til samræmis við kröfur 21. gr. EuGBR, sem fjallar um reglubundna birtingu upplýsinga eftir útgáfu.
Eftirlitsaðilar
Fjallað er um eftirlitsskyldur lögbærra yfirvalda í 44. gr. EuGBR. Þar segir m.a. að lögbær yfirvöld fari með eftirlit gagnvart útgefendum, m.a. hvort þeir uppfylli skilyrði til þess að nota heitið „evrópskt grænt skuldabréf“, fullnægi upplýsingaskyldu sinni, birti gögn á vefsíðu sinni samkvæmt 18. og 19. gr. EuGBR, virði útilokunarkröfur og, sé um verðbréfun að ræða, hvort þeir hlíti viðbótarkröfum um birtingu.
Undanþegin framangreindu eftirliti eru skuldabréf sem ríki, sveitarfélög, opinberar alþjóðlegar stofnanir eða seðlabankar gefa út eða ábyrgjast.
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands mun fara með eftirlit með framkvæmd ákvæðanna gagnvart útgefendum og upphafsaðilum hér á landi.
Evrópska verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunin (ESMA) ber hins vegar ábyrgð á skráningu og eftirliti með ytri úttektaraðilum EuGB. ESMA birtir á heimasíðu sinni lista yfir alla skráða ytri úttektaraðila.
Ytri úttektaraðilar
Ytri úttektaraðili framkvæmir úttekt á upplýsingablaði um evrópsk græn skuldabréf, sbr. 10. gr. EuGBR, fyrir útgáfu skuldabréfsins. Jafnframt framkvæmir hann úttekt á úthlutunarskýrslu eftir útgáfu skuldabréfs, sbr. 11. gr. EuGBR. Þá geta útgefendur óskað eftir endurskoðun ytri úttektaraðila á áhrifaskýrslu skv. 12. gr. EuGBR.
Útgefendur sem kjósa að birta upplýsingar til samræmis við valkvæð sniðmát vegna skuldabréfa, sem eru markaðssett sem umhverfislega sjálfbær eða sjálfbærnitengd, skulu tilgreina í sniðmáti hvort þeir hyggist nota ytri úttekt, sbr. 2. mgr. 20. gr. EuGBR.
Ytri úttektaraðilar skulu vera skráðir sem slíkir hjá ESMA, sbr. 22. gr. EuGBR. Kröfur sem gerðar eru til slíkra aðila koma fram í 2. mgr. 23. gr. og 26.-36. gr. EuGBR, þ.m.t. um óhæði matsstarfsemi, þekkingu og reynslu starfsmanna sem taka þátt í matsstörfum og kröfur sem gerðar eru til úttektaraðila um að takast á við mögulega hagsmunaárekstra í starfsemi sinni.
Afleiddar reglugerðir
Framseld reglugerð ESB 2025/753 útfærir nánar ákvæði EuGBR (einkum 21. gr.) um efni, aðferðir og framsetningu upplýsinga í sameiginlegum sniðmátum sem valkvætt er, fyrir útgefendur skuldabréfa sem markaðssett eru sem umhverfislega sjálfbær eða sjálfbærnitengd skuldabréf, að birta reglulega eftir útgáfu skuldabréfanna. Sniðmátin er að finna í viðauka með framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/753. Innleiðing reglugerðarinnar er ekki hafin.
Framseldri reglugerð (ESB) 2025/2180 útfærir nánar ákvæði EuGBR sem varða skráningu ytri úttektaraðila evrópskra grænna skuldabréfa hjá ESMA eða Eftirlitsstofnun EFTA, þ.e. 23., 27., 28. og 33. gr. innleiðing er ekki hafin.