Fara beint í Meginmál

Eftirlit á lífeyrismarkaði snýr að lífeyrissjóðum og vörsluaðilum séreignarsparnaðar. Annars vegar er um að ræða reglulegt eftirlit í samræmi við grunneftirlitslíkan fjármálaeftirlitsins. Samkvæmt grunneftirlitslíkaninu er skilgreint hversu oft helstu áhættuþættir í rekstri lífeyrissjóðanna eru teknir til athugunar. Hins vegar er um að ræða sértækar athuganir, þ.m.t. vettvangsathuganir, sem taka mið af áhættumati og aðstæðum hverju sinni. Helstu áhættuþættir og þróun á markaði eru greind. Fylgst er með að starfsleyfisskilyrðum sé fullnægt og að starfshættir séu í samræmi við lög og reglur og að gripið sé til viðeigandi ráðstafana hverju sinni.  Þá er fylgst með tryggingafræðilegri stöðu þeirra og að fjárfestingar þeirra séu í samræmi við fjárfestingarheimildir samkvæmt lögum og eigin fjárfestingarstefnu. Megináhersla í eftirliti á lífeyrismarkaði er að sjóðirnir búi við góða stjórnarhætti og sterka tryggingafræðilega stöðu og hafi hagsmuni sjóðfélaga að leiðarljósi ásamt því að tryggja stöðugleika á fjármálamarkaði.

Nánari upplýsingar um eftirlit á lífeyrismarkaði má finna hér.