Fara beint í Meginmál
Fjármálaeftirlit - 11 grein/greinar

Fjármálaeftirlit er eftirlit með fjármálastarfsemi til að stuðla að skilvirkni og öryggi og draga úr líkum á tjóni.

Eftirlitsskyldur aðili er fyrirtæki eða stofnun sem hefur fengið útgefið starfsleyfi.

Fjármálaeftirlitsnefnd tekur ýmsar ákvarðanir  og setur stefnu um beitingu stjórnsýsluviðurlaga og þvingunarúrræða og skal veita umsögn um stefnumarkandi áherslur í fjármálaeftirliti.

Peningaþvætti er að  höndla með ávinning sem fenginn er með afbroti.

Hluti af fjármálaeftirliti Seðlabankans er eftirlit með viðskiptaháttum eftirlitsskylda aðila, þ.m.t. fjárfestavernd og málefnum neytenda.

Það er meðal annars eftirlit með viðskiptum á verðbréfamarkaði, ásamt ýmsu fleiru.

Bankaeftirlit er eftirlit með lánastofnunum, þ.e. viðskiptabönkum, sparisjóðum og lánafyrirtækjum, og verðbréfafyrirtækjum.

Það er m.a. eftirlit með gjaldþoli og stjórnarháttum vátryggingafélaga og vátryggingamiðlara.

Eftirlit á lífeyrismarkaði snýr að lífeyrissjóðum og vörsluaðilum.

Það er meðal annars eftirlit með því hvort sjóðirnir fjárfesti í samræmi við fjárfestingarheimildir, að félögin sem stýra sjóðunum viðhafi góða stjórnarhætti og að hagsmunir sjóðfélaga séu tryggðir.

Jú, fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með fjölmörgum öðrum.