Á sjóðamarkaði hefur fjármálaeftirlitið eftirlit með rekstrarfélögum verðbréfasjóða, sem hafa heimild til að reka verðbréfasjóði, og rekstraraðilum sérhæfðra sjóða, sem hafa heimild til að reka sérhæfða sjóði (fagfjárfestasjóði) fyrir almenna fjárfesta og aðra sérhæfða sjóði. Lykilþáttur í eftirlitinu snýr að því hvort sjóðirnir fjárfesti í samræmi við fjárfestingarheimildir samkvæmt lögum og eigin reglum. Megináhersla í eftirliti á sjóðamarkaði er að félögin sem stýra sjóðunum viðhafi góða stjórnarhætti og fjárfesti í samræmi við heimildir og að lausafjárstýring sjóða sé viðunandi þannig að hagsmunir sjóðfélaga séu tryggðir.
Nánari upplýsingar um eftirlit á sjóðamarkaði má finna hér.