Í eftirliti á verðbréfamarkaði felst meðal annars eftirlit með viðskiptum á skipulegum verðbréfamarkaði, upplýsingagjöf og upplýsingaskyldu útgefenda og starfsemi kauphalla, markaðstorga fjármálagerninga og verðbréfamiðstöðva. Markmið eftirlits með viðskiptum á verðbréfamarkaði er að tryggja eðlilega verðmyndun og að markaðsaðilar fari að lögum og reglum. Verðbréfamarkaðinn er vaktaður og viðskipti í kauphöll greind. Ef miklar breytingar verða á markaði, s.s. óeðlilegt tilboðsflæði eða viðskipti sem leiða til umtalsverðra verðbreytinga á skömmum tíma, þá eru tilboð og viðskipti með einstök verðbréf skoðuð. Í slíkum aðstæðum er meðal annars skoðað hvort aðilar stundi markaðsmisnotkun eða innherjasvik. Jafnframt eru lýsingar verðbréfa, sem birta þarf þegar almennt útboð fer fram eða verðbréf eru tekin til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði, yfirfarnar og staðfestar. Tilgangur lýsinga er að væntanlegir kaupendur hlutaðeigandi verðbréfa geti kynnt sér upplýsingar um starfsemi og áhættuþætti fyrirtækisins eða verðbréfsins sem bjóða á í almennu útboði eða taka á til viðskipta í kauphöll. Þannig hafi fjárfestar aðgang að sömu upplýsingum og geta tekið upplýsta ákvörðun um fjárfestingu í verðbréfunum.
Nánari upplýsingar um verðbréfamarkaðseftirlit má finna hér