Fara beint í Meginmál

Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með vátryggingafélögum og vátryggingamiðlurum og öðrum dreifingaraðilum vátrygginga. Annars vegar er um að ræða reglulegt eftirlit í samræmi við grunneftirlitslíkan fjármálaeftirlitsins. Samkvæmt grunneftirlitslíkaninu er skilgreint hversu oft helstu áhættuþættir í rekstri félaganna eru teknir til athugunar, þ.m.t. svonefnt eftirlitsferli (SRP) hjá vátryggingafélögum. Hins vegar er um að ræða sértækar athuganir, þ.m.t. vettvangsathuganir, sem taka mið af áhættumati og aðstæðum hverju sinni. Viðskiptalíkön eru greind og mat lagt á stjórnarhætti og innra eftirlit. Einstaka áhættuþættir í starfsemi hvers og eins félags eru metnir. Megináhersla í eftirliti á vátryggingamarkaði er að félögin búi við góða stjórnarhætti og sterka gjaldþolsstöðu sem tryggir fjárhagslegan styrk þeirra til að mæta óvæntum áföllum með það að leiðarljósi að vernda hagsmuni vátryggingartaka og vátryggðra ásamt því að tryggja stöðugleika á fjármálamarkaði.

Nánari upplýsingar um eftir á vátryggingamarkaði má finna hér.