Seðlabanki Íslands leggur áherslu á metnaðarfullt starfsumhverfi með það að markmiði að byggja upp trausta liðsheild. Með áherslu á virðingu og vellíðan, jafnrétti, þekkingu, fagmennsku og framsækni nær bankinn markmiðum sínum með árangursríkum hætti.
Sérfræðingur í viðskiptaumsjón
Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða sérfræðing með reynslu af fjármálamarkaði, í deild viðskiptaumsjónar á sviði markaðsviðskipta.
Nánar
Reykjavík - Fullt starf
Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða sérfræðing með reynslu af fjármálamarkaði, í deild viðskiptaumsjónar á sviði markaðsviðskipta.
Svið markaðsviðskipta hefur umsjón með innlendum peninga- og gjaldeyrismarkaði, annast viðskipti bankans við innlendar og erlendar fjármálastofnanir, sér um stýringu á efnahagsreikningi bankans, vörslu og ávöxtun gjaldeyrisforða, umsjón með lánamálum ríkissjóðs, auk heildstæðs eftirlits með fjárhagsáhættu á efnahagsreikningi Seðlabankans.
Viðskiptaumsjón er ein af fjórum deildum á sviðinu og sinnir m.a. frágangi viðskipta vegna lánamála ríkisins, gjaldeyrisviðskipta og markaðsaðgerða Seðlabankans.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Innlent og erlent verðbréfauppgjör
- Verðbréfavarsla
- Greiðslumiðlun í krónum og erlendum myntum
- Vöktun á kortauppgjörskerfi
- Bankaþjónusta fyrir ríki og ríkisstofnanir
Menntunar og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. í viðskiptafræði
- Viðeigandi reynsla af fjármálamarkaði
- Þekking á innlendum og erlendum greiðslu- og uppgjörskerfum er kostur
- Þekking á Swift greiðslu- og verðbréfaskeytum er kostur
- Færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu
- Nákvæmni, frumkvæði, drifkraftur og metnaður til að ná árangri í starfi
- Góð færni í að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
Frekari upplýsingar veita Thelma Hinriksdóttir forstöðumaður viðskiptaumsjónar (thelma.hinriksdottir@sedlabanki.is) og Erla Traustadóttir mannauðsráðgjafi (mannaudur@ sedlabanki.is). Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember nk.
Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, heilindum, auðmýkt og áræðni.
Forstöðumaður viðskiptaborðs
SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða metnaðarfullan leiðtoga í starf forstöðumanns viðskiptaborðs á sviði markaðsviðskipta.
Nánar
Reykjavík - Fullt starf
SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða metnaðarfullan leiðtoga í starf forstöðumanns viðskiptaborðs á sviði markaðsviðskipta.
Svið markaðsviðskipta hefur umsjón með innlendum peninga- og gjaldeyrismarkaði, annast viðskipti bankans við innlendar og erlendar fjármálastofnanir, sér um stýringu á efnahagsreikningi bankans, vörslu og ávöxtun gjaldeyrisforða, umsjón með lánamálum ríkissjóðs, auk heildstæðs eftirlits með fjárhagsáhættu á efnahagsreikningi Seðlabankans.
Deild viðskiptaborðs er ein af fjórum deildum markaðsviðskipta og hefur umsjón með innlendum peninga- og gjaldeyrismarkaði, annast viðskipti bankans við innlendar og erlendar fjármálastofnanir og sinnir vörslu og ávöxtun gjaldeyrisforða. Enn fremur annast deildin greiningar þvert á fjármálamarkaði, en með áherslu á hvorutveggja innlendan og erlenda skuldabréfa- og gjaldeyrismarkaði.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Ábyrgð á verkefnum deildar, uppbyggingu og faglegri þróun.
- Dagleg verkstjórn og mótun sterkrar liðsheildar.
- Fagleg ábyrgð á markaðsaðgerðum Seðlabankans, stýringu gjaldeyrisforða og framkvæmd gjaldeyris- og verðbréfaviðskipta.
- Ábyrgð á vöktun og greiningu fjármálamarkaða, lausafjárstýringu og upplýsingagjöf til stjórnenda og nefnda bankans.
- Tekur þátt í stefnumótun og þróun framtíðarsýnar sviðsins
- Þátttaka í innlendu og erlendu samstarfi á vegum Seðlabankans
- Skrif í rit Seðlabankans ásamt öðrum skrifum og gerð kynningarefnis
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi s.s. á sviði hagfræði, fjármála, verkfræði eða sambærilegu.
- Viðurkennd alþjóðleg sérfræðimenntun á sviði fjármála og eignastýringar er kostur.
- Sterkir leiðtogahæfileikar.
- Reynsla af daglegri verkstjórn og mannaforráðum æskileg.
- Góð þekking á fjármálamörkuðum, einkum peninga-, gjaldeyris- og skuldabréfamörkuðum.
- Viðeigandi starfsreynsla af markaðsviðskiptum, markaðsaðgerðum, fjárstýringu, eignastýringu eða sambærilegum verkefnum.
- Góður skilningur á framkvæmd peningastefnu, lausafjárstýringu og hlutverki seðlabanka á fjármálamörkuðum.
- Gild verðbréfaréttindi.
- Góð greiningarfærni ásamt hæfni til að setja fram og kynna niðurstöður.
- Hæfni til að tjá sig og miðla upplýsingum í ræðu og riti á íslensku og ensku.
- Góð færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu.
- Fagleg vinnubrögð, umbótahugsun og metnaður til að ná árangri í starfi.
Frekari upplýsingar um starfið veita Valdimar Ármann, framkvæmdastjóri markaðsviðskipta (valdimar.armann@sedlabanki.is) og Íris Guðrún Ragnarsdóttir framkvæmdastjóri mannauðs- og menningar (iris.g.ragnarsdottir@sedlabanki.is). Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember nk.
Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, heilindum, auðmýkt og áræðni.
Sérfræðingur í hugbúnaðarþróun með áherslu á gervigreind
Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða áhugasaman og metnaðarfullan forritara í teymi hugbúnaðarþróunar. Við leitum að öflugum einstaklingi með reynslu af fram- og bakendaþróun og áhuga á að þróa nýjar leiðir við hugbúnaðargerð með sjálfvirkni og gervigreind.

Hugbúnaðarþróun er teymi innan deildarinnar þróun og gagnahögun á sviði upplýsingatækni. Teymið vinnur að þróun, viðhaldi og rekstri hugbúnaðarlausna og gagnaumhverfis bankans. Starfið spannar allt þróunarferlið frá þarfagreiningu og hönnun til útfærslu og rekstrar. Áhersla er lögð á að leggja fram og meta ólíkar leiðir til úrlausnar í samstarfi við hagaðila.
Við leitum að einstaklingi sem sýnir frumkvæði og er viljugur til að kanna hvernig nýta megi gervigreindarerindreka með öruggum hætti við hugbúnaðargerð. Viðkomandi tekur einnig þátt í að móta og þróa hvernig megi hagnýta gervigreind og sjálfvirkni í daglegum rekstri.
Helstu ábyrgðarsvið
- Þarfagreining og hönnun hugbúnaðarlausna ásamt þróun fram- og bakenda.
- Sinna viðhaldi, uppfærslum og áframhaldandi umbótum á lausnum í rekstri.
- Samþætting hugbúnaðarlausna við önnur kerfi og gagnaþjónustur.
- Hagnýting sjálfvirkni og gervigreindar í lausnum og þróunarferlum, meðal annars með gervigreindarerindrekum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða sambærilegra greina.
- Sterk forritunarfærni og haldgóð reynsla af hugbúnaðarþróun í .NET og vinnu með SQL, þar á meðal fram- og bakendaþróun.
- Reynsla af þarfagreiningu og hönnun hugbúnaðarlausna og hæfni til að greina verkefni og meta ólíkar lausnaleiðir.
- Frumkvæði, sjálfstæði og drifkraftur til að koma hugmyndum í framkvæmd og fylgja verkefnum eftir.
- Áhugi á og reynsla af hagnýtingu gervigreindar og sjálfvirkni í hugbúnaðarþróun.
- Þekking á stórum mállíkönum og hvernig nýta má þau í hugbúnaðarlausnum.
- Reynsla af þróun gervigreindarerindreka og tengingu mállíkana við gögn og kerfi í gegnum forritaskil (API) er kostur.
- Góð samskiptafærni og hæfni til að útskýra tæknileg viðfangsefni á íslensku og ensku.
Frekari upplýsingar um starfið veita Elín Rut Guðnadóttir, forstöðumaður þróunar og gagnahögunar Elin.Rut.Gudnadottir@sedlabanki.is og Árni Ragnar Stefánsson, mannauðsráðgjafi á sviði mannauðs og menningar mannaudur@sedlabanki.is. Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember 2026.
Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, heilindum, auðmýkt og áræðni.
Sérfræðistörf
Við sérstakar aðstæður getur komið til þess að fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands þurfi að semja við sérfræðinga til að sinna tilteknum verkefnum eins og að athuga tiltekna þætti í starfsemi eða rekstri eftirlitsskylds aðila eða til að hafa að öðru leyti sértækt eftirlit með eftirlitsskyldum aðila.
Nánar
Reykjavík - Hlutastarf
Við sérstakar aðstæður getur komið til þess að fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands þurfi að semja við sérfræðinga til að sinna tilteknum verkefnum. Þá hefur fjármálaeftirlitið sérstaka heimild til að skipa sérfræðing til að athuga tiltekna þætti í starfsemi eða rekstri eftirlitsskylds aðila eða til að hafa að öðru leyti sértækt eftirlit með eftirlitsskyldum aðila, sbr. 2. mgr. 9. gr. laga nr. 87/1998, um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Jafnframt hefur fjármálaeftirlitið meðal annars heimild til að skipa við sérstakar aðstæður fjármálafyrirtæki bráðabirgðastjórnanda, sbr. 107. gr. e laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, og vátryggingafélagi slitastjórn, sbr. 152. gr. laga nr. 100/2016, um vátryggingastarfsemi.
Fjármálaeftirlitið tekur við ferilskrám, og eftir atvikum kynningarbréfum, þeirra sem eru reiðubúnir að gefa kost á sér til slíkra starfa. Einnig geta fyrirtæki gefið kost á tilteknum starfsmönnum sínum til slíkra starfa. Leitað er að einstaklingum með fjölbreytta þekkingu og reynslu á sviði lögfræði, viðskiptafræði, hagfræði, verkfræði, fjármálamarkaða, reksturs, stjórnunar, upplýsingatækni, reikningsskila o.fl.
Ferilskrá, og eftir atvikum kynningarbréf, skulu gefa glögga mynd af menntun og reynslu hlutaðeigandi. Upplýsingarnar verða aðgengilegar viðeigandi stjórnendum innan fjármálaeftirlitsins ef til greina kemur að semja við sérfræðing til að sinna tilteknu verkefni. Þá skulu upplýsingar um heimilisfang, símanúmer og netfang fylgja ferilskránni. Jafnframt er mikilvægt að fram komi upplýsingar um tengsl hlutaðeigandi við einstaka eftirlitsskylda aðila. Vakin er athygli á því að almennt koma starfsmenn eftirlitsskyldra aðila ekki til greina til umræddra sérfræðistarfa.
Fyrirspurnir má senda á netfangið sedlabanki@sedlabanki.is.
Almenn umsókn
Hér getur þú sent inn almenna umsókn í tímabundin störf.
Nánar
Reykjavík - Hlutastarf
Takk fyrir að sýna því áhuga á að starfa með okkur í Seðlabanka Íslands.
Seðlabanka Íslands ber skylda til að auglýsa opinberlega laus störf samkvæmt 3. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, sbr. nánar reglur nr. 1000/2019 um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsþjálfun
Hér getur þú sent inn umsókn um starfsþjálfun.
Nánar
Reykjavík - Fullt starf
Takk fyrir að sýna því áhuga að koma í starfsþjálfun hjá okkur í Seðlabanka Íslands.
Hér getur þú sótt um að koma til okkar í starfsþjálfun. Við förum reglulega yfir umsóknir og verðum í sambandi ef við höfum lausa starfsþjálfunarstöðu við þitt hæfi. Starfsþjálfun er einstakt tækifæri fyrir háskólanema til að öðlast hagnýta og starfstengda reynslu og er markmið okkar að bjóða reglulega upp á fjölbreytt tækifæri fyrir nemendur til að kynnast verkefnum og starfsemi bankans.