Breyting á stórgreiðslumörkum og starfrækslutíma stórgreiðslukerfis Seðlabanka Íslands
Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur sett nýjar reglur um greiðslukerfi, annars vegar reglur um starfsemi jöfnunarkerfa og hins vegar reglur um stórgreiðslukerfi Seðlabanka Íslands. Reglurnar koma í stað reglna nr. 951 frá 29. desember 2000 um aðgang að uppgjörsreikningum í Seðlabanka Íslands og taka gildi 1. nóvember 2003.
Reglunum er ætlað að skapa traustari umgjörð um örugga og skilvirka starfsemi greiðslukerfa hér á landi svo uppfylla megi alþjóðlega viðurkennd viðmið í þeim efnum. Þær voru mótaðar í samráði við stjórn Fjölgreiðslumiðlunar hf.
Athygli er vakin á eftirfarandi breytingum á stórgreiðslumörkum og starfrækslutíma stórgreiðslukerfisins:
Breyting á stórgreiðslumörkum
Lágmarksfjárhæð greiðslufyrirmæla sem afgreidd eru í stórgreiðslukerfi Seðlabankans verður lækkuð úr 25 milljónum króna í 10 milljónir króna. Fyrirmæli um greiðslur sem eru 10 milljónir króna eða hærri verða því afgreidd í stórgreiðslukerfinu. Fyrirmæli um greiðslur allt að 10 milljónum króna verða afgreidd í jöfnunarkerfinu. Þó verða öll greiðslufyrirmæli vegna uppgjörs í jöfnunarkerfinu og uppgjörs verðbréfaviðskipta afgreidd í stórgreiðslukerfinu án tillits til fjárhæðar.
Breyting þessi tekur gildi 1. nóvember 2003.
Breyting á starfrækslutíma stórgreiðslukerfisins
Almennur starfrækslutími stórgreiðslukerfisins, sem verið hefur frá kl. 8.45 til kl. 18.00 á almennum bankadögum, styttist og verður frá kl. 9.00 til kl. 17.00 á almennum bankadögum. Frá kl. 8.45 til kl. 9.00 verður kerfið þó opið fyrir greiðslufyrirmæli vegna uppgjörs verðbréfaviðskipta. Þá verður kerfið opið frá kl. 17.00 til kl. 17.30 fyrir innbyrðis uppgjör banka.
Breyting þessi tekur gildi 1. nóvember 2003.
Nánari upplýsingar
Reglurnar verða birtar í heild sinni á heimasíðu Seðlabanka
Íslands og í Stjórnartíðindum.
Nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Ásgeirsson á fjármálasviði Seðlabanka Íslands í síma 569-9600.
Nr. 27/2003
20. október 2003