![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
14. janúar 2014
Innlendur gjaldeyrismarkaður og gjaldeyrisforði 2013
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/sedlabanki39_ISL.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Hinn 15. maí 2013 mótaði peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands síðan stefnu um virkari inngrip bankans á gjaldeyrismarkaði, sem dró úr daglegu flökti og sveiflum í gengi íslensku krónunnar það sem eftir var ársins. Gengi krónunnar styrktist um nær 11% á árinu miðað við vísitölu meðalgengis. Á árinu námu hrein gjaldeyriskaup bankans 9 milljónum evra eða jafnvirði rúmlega einum milljarði króna. Framvirkir gjaldeyrissamningar, sem gerðir voru í árslok 2010 í því skyni að draga úr gjaldeyrismisvægi í bankakerfinu, voru gerðir upp að hluta og styrkti það erlenda gjaldeyrisstöðu Seðlabankans um rúma 29 ma.kr. Þá voru gerðir gjaldeyrissamningar á árinu sem fólu í sér gjaldeyrisútflæði að fjárhæð 6 ma.kr.
Sjá hér fréttina í heild:
Innlendur gjaldeyrismarkaður og gjaldeyrisforði 2013. Frétt nr. 1/2014, 14. janúar 2014.