15. desember 2014
Málstofa um undirliggjandi verðbólgu sem mæld er með kviku þáttalíkani
Málstofa um þetta efni verður haldin í Sölvhóli á morgun, þriðjudaginn 16. desember klukkan 15:00.
Á málstofunni mun Bjarni Geir Einarsson, hagfræðingur, fjalla um efnið út frá nýútkominni rannsóknarritgerð: A Dynamic Factor Model for Icelandic Core Inflation