![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
19. febrúar 2019
Opinn fundur peningastefnunefndar með efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis
![Peningastefnunefnd 2018 Peningastefnunefnd 2018](/library/Ljosmyndir_ISL/Nefndir_ISL/PSNefnd_Sept2018.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Lög um Seðlabanka Íslands kveða svo á að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skuli gefa Alþingi skýrslu um störf sín tvisvar á ári og að ræða skuli efni skýrslunnar í þeirri þingnefnd sem þingforseti ákveður.
Sautjándi fundur peningastefnunefndar með Alþingi var haldinn 21. febrúar 2019 kl 09:00. Már Guðmundsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar og Rannveig Sigurðardóttir, aðstoðarseðlabankastjóri og peningastefnunefndarmaður mættu á fundinn.
Útsendingu frá fundinum má finna hér: Upptaka frá opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar með peningastefnunefnd
Inngangsorð seðlabankastjóra frá fundinum er að finna hér: Inngangsorð