![logo-for-printing](/themes/Bootstrap/img/logo.png)
18. nóvember 2020
Nóvemberhefti Peningamála komið út
![Bygging Seðlabanka Íslands Bygging Seðlabanka Íslands](/library/Ljosmyndir_ISL/Hus_ad_utan_ISL/sedlabanki35_ISL.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Nóvemberhefti Peningamála hefur verið birt hér á vef Seðlabanka Íslands. Í ritinu, sem gefið er út fjórum sinnum á ári, gerir Seðlabankinn grein fyrir horfum í efnahags- og peningamálum. Þá er í ritinu birt verðbólgu- og þjóðhagsspá ásamt ýtarlegri umfjöllun um þróun og horfur í efnahags- og peningamálum. Sú greining og sú spá sem birt er gegnir mikilvægu hlutverki við mótun peningastefnunnar hér á landi. Ritið er einnig gefið út á ensku undir heitinu Monetary Bulletin.
Sjá hér nóvemberhefti Peningamála: Peningamál 2020/4
Sjá hér sundurliðið yfirlit yfir efni Peningamála 2020/4
Sjá hér yfirlit yfir útgefin Peningamál og fleiri rit.