Lífeyrissparnaður nam nærri 5.730 milljörðum króna við lok þriðja ársfjórðungs 2020
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur birt upplýsingar um heildareignir samtryggingar- og séreignarsparnaðar lífeyrissjóða og sundurliðun þeirra miðað við lok þriðja ársfjórðungs 2020 ásamt sambærilegum gögnum er ná aftur til þriðja ársfjórðungs 2017. Hér er einnig stutt samantekt þeirra upplýsinga sem þar er að finna.