logo-for-printing

09. febrúar 2022

Yfirlýsing peningastefnunefndar 9. febrúar 2022

Peningastefnunefnd: f.v. Rannveig Sigurðardóttir, Gylfi Zoëga, Ásgeir Jónsson, Katrín Ólafsdóttir og Gunnar Jakobsson

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,75 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 2,75%.

Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans sem birt er í febrúarhefti Peningamála var hagvöxtur um 1 prósentu meiri á síðasta ári en spáð var í nóvember eða um 4,9%. Spáð er svipuðum hagvexti í ár. Störfum hefur haldið áfram að fjölga og atvinnuleysi að minnka og er áætlað að framleiðsluslakinn sem myndaðist í kjölfar COVID-19-farsóttarinnar sé horfinn. Óvissa er hins vegar enn mikil.

Verðbólguhorfur hafa versnað töluvert frá síðasta fundi nefndarinnar og mældist verðbólga 5,7% í janúar. Undirliggjandi verðbólga hefur einnig aukist og er talin vera ríflega 4%. Þá hafa verðbólguvæntingar á suma mælikvarða hækkað. Hækkun húsnæðisverðs vegur þungt en aðrir innlendir kostnaðarliðir hafa einnig hækkað. Við bætist hækkun alþjóðlegs olíu- og hrávöruverðs. Samkvæmt spá Seðlabankans eru horfur á að verðbólga verði 5,8% á fyrsta fjórðungi ársins og yfir 5% fram eftir þessu ári. Gert er ráð fyrir að verðbólga hjaðni þegar hægir á verðhækkun húsnæðis og alþjóðlegar verðhækkanir fjara út en að hún verði ekki komin að markmiði fyrr en undir lok spátímans.

Peningastefnunefnd ítrekar að hún mun beita þeim tækjum sem hún hefur yfir að ráða til að tryggja að verðbólga hjaðni aftur í markmið innan ásættanlegs tíma.

Nr. 6/2022
9. febrúar 2022

Vextir verða því sem hér segir:
1. Daglán 4,50%
2. Lán gegn veði til 7 daga 3,50%
3. Innlán bundin í 7 daga 2,75%
4. Viðskiptareikningar 2,50%

 

Sjá hér: Vextir og bindiskylda við Seðlabanka Íslands, 9. febrúar 2022

 

Til baka