Samkomulag Seðlabanka Íslands við Íslandsbanka hf. um að ljúka með sátt máli vegna brota Íslandsbanka gegn lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur haft til meðferðar mál er varðar meint brot Íslandsbanka hf. gegn tilteknum ákvæðum laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Frummat fjármálaeftirlitsins var sent til Íslandsbanka 1. september 2023. Með bréfi dags. 22. september 2023 lýsti Íslandsbanki yfir vilja til að ljúka málinu með sátt við fjármálaeftirlitið. Á fundi fjármálaeftirlitsnefndar 2. maí síðastliðinn var málið talið að fullu upplýst og forsendur til að ljúka því með sátt við málsaðila. Í samræmi við það og á grundvelli fyrirliggjandi gagna tók fjármálaeftirlitsnefnd ákvörðun um að ljúka málinu með samkomulagi um sátt og greiðslu sektar að fjárhæð 570.000.000 kr. til ríkissjóðs ásamt skuldbindingu um úrbætur vegna brota gegn lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, sem send var bankanum 31. maí síðastliðinn.
Brot málsaðila varða áhættumat bankans á starfsemi vegna peningaþvættis og fjármögnunar hryðjuverka, áhættumat á samningssamböndum og einstökum viðskiptum, framkvæmd áreiðanleikakannana, framkvæmd áreiðanleikakannana hjá erlendum fjármálafyrirtækjum, framkvæmd aukinna áreiðanleikakannana og reglubundið eftirlit með viðskiptum og viðskiptamönnum, þ.m.t. skráningu og rekjanleika reiðufjárviðskipta. Brotin eru mörg og varða marga grundvallarþætti í aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Þá teljast brotin alvarleg og nokkur brot eru ítrekuð frá fyrri athugun fjármálaeftirlitsins á fylgni bankans við lögin sem fór fram árið 2021. Loks varða mörg brot viðskiptamenn og vörur sem teljast til hárrar áhættu með tilliti til peningaþvættis, s.s. reiðufjárviðskipti.
Í sáttinni, sem birt er í heild sinni, er málsatvikum og niðurstöðum fjármálaeftirlitsins á brotum Íslandsbanka lýst með yfirstrikunum í samræmi við 9. gr. a laga nr. 87/1998 um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Með undirritun sáttarinnar hefur bankinn gengist við því að hafa gerst brotlegur við nánar tiltekin ákvæði laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Íslandsbanka ber að skila úttekt á úrbótum bankans innan 14 vikna frá undirritun sáttar.