logo-for-printing

10. september 2024

Leiðréttar tölur um viðskiptajöfnuð og erlenda stöðu þjóðarbúsins á öðrum ársfjórðungi 2024

Tölur um viðskiptajöfnuð við útlönd sem birtar voru 3. september sl. hafa verið leiðréttar. Leiðréttingin varðar frumþáttatekjur af beinni fjárfestingu á öðrum ársfjórðungi 2024 og hefur hún áhrif til aukningar á halla viðskiptajafnaðar. Samkvæmt nýjum tölum er halli á viðskiptajöfnuði 13,4 ma.kr. meiri en áður var birt. Leiðrétt nemur viðskiptajöfnuður því 43,9 ma.kr. en var áður 30,5 ma.kr.

Leiðréttingin hefur einnig áhrif á erlenda stöðu þjóðarbúsins. Töluverð breyting varð á eignum þjóðarbúsins sem lækka um 76,4 ma.kr. en skuldir lækka um álíka upphæð eða 74,9 ma.kr. Nettó áhrif nema því 1,4 ma.kr. og er erlend staða þjóðarbúsins nú 1.703,9 ma.kr. eða 38,8% af VLF.

Sjá hér: Greiðslujöfnuður við útlönd

 

Til baka