
Stefnumarkandi áherslur við eftirlit á fjármálamarkaði 2025-2027
.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Seðlabanki Íslands hefur birt ritið Stefnumarkandi áherslur við eftirlit á fjármálamarkaði 2025-2027. Í ritinu eru lagðar fram sex stefnumarkandi áherslur til þriggja ára. Þær eru viðnámsþróttur eftirlitsskyldra aðila, net- og upplýsingatækniöryggi, aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, ábyrgir viðskiptahættir, stjórnarhættir og loftslagsáhætta og upplýsingagjöf um sjálfbærniþætti.
Áherslunum er ætlað að vera leiðarljós við forgangsröðun verkefna fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands á næstu árum og nýtast m.a. við árlega gerð verkáætlunar fjármálaeftirlitsins. Með birtingu stefnumarkandi áherslna til ársins 2027 er m.a. markmiðið að stuðla að gagnsæi í störfum fjármálaeftirlitsins. Slíkt gagnsæi gerir eftirlitsskyldum aðilum kleift að taka mið af stefnu og markmiðum fjármálaeftirlitsins í starfsemi sinni.
Hér er ritið aðgengilegt: Stefnumarkandi áherslur við eftirlit á fjármálamarkaði 2025-2027
Til baka