IFD/IFR
Regluverk Evrópusambandsins um varfærniseftirlit með verðbréfafyrirtækjum samanstendur annars vegar af reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2033 um varfærniskröfur fyrir verðbréfafyrirtæki (IFR) og hins vegar tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2034 um varfærniseftirlit með verðbréfafyrirtækjum (IFD).
Regluverkið tók gildi í Evrópusambandinu (ESB) 26. júní 2021. Í lok mars 2026 var frumvarp um varfærnisregluverk verðbréfafyrirtækja, sem innleiðir IFD og IFR, lagt fram á Alþingi. Frumvarpið náði ekki fram að ganga og var því lagt fram að nýju á Alþingi í október 2026.
Hingað til hafa verðbréfafyrirtæki fallið undir sömu varfærnisumgjörð og lánastofnanir, þ.e. reglugerð (ESB) 575/2013 (CRR) og tilskipun (ESB) 2013/36 (CRD IV). Með regluverkinu eru verðbréfafyrirtæki í megindráttum skilin frá reglum um varfærniseftirlit með bönkum og öðrum lánastofnunum. Með því móti getur regluverkið betur tekið mið af sérstöðu hvorrar tegundar fyrirtækja fyrir sig og unnt er að hafa einfaldari löggjöf fyrir verðbréfafyrirtæki.
Flokkun verðbréfafyrirtækja
Regluverkið gerir ráð fyrir þrískiptri flokkun verðbréfafyrirtækja eftir stærð, umfangi og starfsemi. Mismunandi varfærniskröfur gilda eftir því í hvaða flokk fyrirtæki fellur.
Öll starfandi íslensk verðbréfafyrirtæki falla í flokk 2 eða 3. Í umfjölluninni hér á eftir verður þó gerð grein fyrir öllum þremur flokkunum og nánar fjallað um helstu kröfur regluverksins og hvernig þær eru mismunandi eftir flokkum.
Flokkur 1:
Undir flokk 1 falla stór verðbréfafyrirtæki sem, með hliðsjón af umfangi og áhættu starfsemi sinnar, eru talin sambærileg lánastofnunum.
Hér er um að ræða verðbréfafyrirtæki sem eiga í viðskiptum fyrir eigin reikning eða veita sölutryggingu í tengslum við útgáfu eða útboð fjármálagerninga, að því tilskildu að fyrirtækið sé ekki miðlari hrávöru og losunarheimilda, sjóður um sameiginlega fjárfestingu eða vátryggingafélag, og að annað hvort eftirfarandi skilyrða eigi við, sbr. a- og b-lið 2. mgr. 1. gr. IFR:
- heildarvirði samstæðueigna verðbréfafyrirtækisins nemur 15 milljörðum evra eða meira, reiknað út sem meðaltal næstliðinna 12 mánaða, að undanskildu virði einstakra eigna dótturfélaga með staðfestu utan Sambandsins sem stunda framangreinda starfsemi, eða
- heildarvirði samstæðueigna verðbréfafyrirtækisins er lægra en 15 milljarðar evra og verðbréfafyrirtækið er hluti samstæðu þar sem heildarvirði samstæðueigna allra fyrirtækja í samstæðunni, sem hvert um sig á heildareignir að andvirði undir 15 milljarða evra og stundar aðra hvora framangreinda starfsemi, nemur 15 milljörðum evra eða meira, í öllum tilvikum reiknað sem meðaltal næstliðinna 12 mánaða, að undanskildu virði einstakra eigna dótturfélaga með staðfestu utan Sambandsins sem stunda aðra hvora framangreinda starfsemi.
Samkvæmt c-lið 2. mgr. 1. gr. IFR geta verðbréfafyrirtæki jafnframt fallið í flokk 1 á grundvelli ákvörðunar lögbærs yfirvalds á grundvelli 20. gr. laga um varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja. Lögbært yfirvald getur samkvæmt ákvæðinu ákveðið að beita kröfum reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 (CRR) á verðbréfafyrirtæki sem á í viðskiptum fyrir eigin reikning eða veitir sölutryggingu í tengslum við útgáfu eða útboð fjármálagerninga. Heimildin á þó ekki við um miðlara hrávöru og losunarheimilda, sjóði um sameiginlega fjárfestingu eða vátryggingafélög.
Skilyrði slíkrar ákvörðunar er að heildarvirði samstæðueigna verðbréfafyrirtækisins nemi 5 milljörðum evra eða meira, reiknað sem meðaltal næstliðinna 12 mánaða, og að eitt eða fleiri eftirfarandi skilyrða eigi við:
- Starfsemi verðbréfafyrirtækisins er það umfangsmikil að fall eða vandræði þess gætu haft í för með sér kerfisáhættu;
- Verðbréfafyrirtækið er stöðustofnunaraðili; eða
- Lögbært yfirvald telur það réttlætanlegt með hliðsjón af stærð, eðli og umfangi starfsemi verðbréfafyrirtækisins og því hversu flókin hún er, að teknu tilliti til meðalhófsreglunnar og eins eða fleiri eftirfarandi þátta:
- mikilvægis verðbréfafyrirtækisins fyrir efnahag Sambandsins eða viðkomandi aðildarríkis,
- mikilvægis starfsemi verðbréfafyrirtækisins yfir landamæri,
- samtengingar verðbréfafyrirtækisins við fjármálakerfið.
Samkvæmt 5. mgr. 1. gr. IFR geta lögbær yfirvöld heimilað verðbréfafyrirtæki sem á í viðskiptum fyrir eigin reikning eða veitir sölutryggingu í tengslum við útgáfu eða útboð fjármálagerninga að beita kröfum CRR, enda séu öll eftirfarandi skilyrði uppfyllt:
- Verðbréfafyrirtækið er dótturfélag og er tekið með í eftirlitið á samstæðugrunni með lánastofnun, eignarhaldsfélagi á fjármálasviði eða blönduðu eignarhaldsfélagi í fjármálastarfsemi samkvæmt CRR;
- Verðbréfafyrirtækið tilkynnir lögbæru yfirvaldi samkvæmt IFR og eftirlitsaðila á samstæðugrunni, ef við á; og
- Lögbært yfirvald hefur gengið úr skugga um að beiting eiginfjárgrunnskrafna CRR á verðbréfafyrirtækið á einingargrunni og, eftir því sem við á, á samstæðuna á samstæðugrunni sé varfærnislega traust, leiði ekki til lækkunar á eiginfjárgrunnskröfum verðbréfafyrirtækisins samkvæmt IFR og sé ekki í eftirlitshögnunarskyni.
Framangreind verðbréfafyrirtæki lúta eftirliti með því að farið sé að varfærniskröfum samkvæmt ákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki sem innleiða VII. og VIII. bálk CRD IV. Ákvæði 6. gr., III. kafla, 22.–34. gr. og V.–VII. kafla frumvarps til laga um varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja gilda ekki um þau, sbr. 2. mgr. 1. gr. frumvarpsins. Önnur ákvæði laga um fjármálafyrirtæki gilda hins vegar um þau eftir því sem við á. Þá munu ákvæði 55. og 59. gr. IFR gilda um verðbréfafyrirtæki sem falla undir 2. mgr. 1. gr. IFR, sbr. 4. mgr. sömu greinar.
Flokkur 2:
Undir flokk 2 falla verðbréfafyrirtæki sem hvorki falla í flokk 1 né 3. Þessi fyrirtæki falla að fullu undir gildissvið IFD/IFR.
Flokkur 3:
Undir flokk 3 falla lítil og ótengd verðbréfafyrirtæki, þ.e. fyrirtæki sem uppfylla öll skilyrði 1. mgr. 12. gr. IFR, meðal annars um tekjur og fjárhæð eigna í stýringu.
Vægari kröfur eru gerðar til slíkra verðbréfafyrirtækja en verðbréfafyrirtækja í flokki 2, m.a. hvað varðar eigið fé, laust fé, samþjöppunaráhættu, birtingu upplýsinga og upplýsingagjöf til lögbærra yfirvalda, og eru þau undanþegin að mestu leyti ákvæðum um stjórnarhætti og starfskjör.
Eigið fé
Eiginfjárkröfur eru reiknaðar út með mismunandi hætti eftir því í hvaða flokk verðbréfafyrirtæki fellur.
Verðbréfafyrirtæki í flokki 1 lúta eiginfjárkröfum skv. CRR.
Verðbréfafyrirtæki í flokki 2 skulu uppfylla eiginfjárkröfu sem nemur hæstu fjárhæð skv. eftirfarandi þremur aðferðum, sbr. 1. mgr. 11. gr. IFR:
- Varanlegt lágmarksfjármagn, sbr. 14. gr. IFR.
- Krafa vegna fasts kostnaðar, sbr. 13. gr. IFR.
- K-þáttarkrafa, sbr. 15. gr. IFR.
Eiginfjárkrafa verðbréfafyrirtækja í flokki 3 miðast við hærri fjárhæðina af kröfu um varanlegt lágmarksfjármagn og kröfu vegna fasts kostnaðar, sbr. 2. mgr. 11. gr. IFR.
Varanlegt lágmarksfjármagn er mismunandi eftir því hvaða starfsemi viðkomandi verðbréfafyrirtæki stundar. Fjárhæðin er á bilinu 75.000-750.000 evrur, sbr. 5. gr. frumvarps til laga um varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja.
Eiginfjárkrafa sem tengist föstum kostnaði reiknast út frá síðastliðnu ári og er 25% af honum. Nánar er fjallað um útreikning kröfunnar og frávik frá útreikningnum í 13. gr. í IFR og í framseldri reglugerð (ESB) 2022/1455.
K-þættir eru reiknaðir í samræmi við 15. gr. IFR. Þættirnir skiptast í þrjá flokka eftir þeirri áhættu sem þeim er ætlað að mæla. Flokkarnir eru:
- K-þættir vegna áhættu viðskiptavinar (2. kafli þriðja hluta IFR): K-AUM, K-CMH, K-ASA og K-COH, sem taka til eigna í stýringu, varðveitts fjár viðskiptavina, eigna í varðveislu og umsýslu og meðhöndlaðra fyrirmæla viðskiptavina.
- K-þættir vegna áhættu markaðar (3. kafli þriðja hluta IFR): K-NPR eða, að fengnu samþykki, K-CMG, sem taka til markaðsáhættu vegna viðskipta fyrir eigin reikning eða tryggingarkrafna stöðustofnunaraðila.
- K-þættir vegna áhættu fyrirtækis (4. kafli þriðja hluta IFR): K-TCD, K-DTF og K-CON, sem taka til mótaðilaáhættu, daglegs viðskiptaflæðis og samþjöppunaráhættu.
Samtala K-þáttanna myndar K-þáttarkröfu verðbréfafyrirtækisins. Nánar er fjallað um K-þætti og þá liði sem falla undir hvern þeirra í 2.-4. kafla þriðja hluta IFR. Einnig er að finna upplýsingar um skýrsluskil og útreikninga þessara þátta í framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/2284, sem síðar var breytt með framkvæmdarreglugerð (ESB) 2025/2159, og í framseldum reglugerðum (ESB) nr. 2022/244, 2022/76, 2022/25 og 2022/26.
Eiginfjárgrunnur í skilningi varfærnisreglna er skilgreindur í samræmi við reglur CRR. Aðeins þeir gerningar, varasjóðir og aðrir liðir sem uppfylla skilyrði CRR, að teknu tilliti til breytinga og sérreglna í IFR, geta talist til eiginfjárgrunns.
Samkvæmt 1. mgr. 9. gr. IFR getur eiginfjárgrunnur verið samsettur af:
- almennu eigin fé þáttar 1 – CET1,
- viðbótareiginfé þáttar 1 – AT1, og
- eiginfjárþætti 2 – T2.
Eiginfjárgrunnur verðbréfafyrirtækis skal uppfylla eftirfarandi hlutföll:
| Gæði eiginfjárgrunns | Lágmark miðað við D |
|---|---|
CET1 | 56% |
CET1 + AT1, þ.e. eiginfjárþáttur 1 | 75% |
CET1 + AT1 + T2, þ.e. heildareiginfjárgrunnur | 100% |
Lágmarkskrafa samkvæmt IFR getur verið hækkuð með sértækri viðbótarkröfu um eiginfjárgrunn, sbr. 1. tölul. 28. gr. og 29. gr. frumvarps til laga um varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja (sjá einnig sameiginlegar viðmiðunarreglur EBA og ESMA, EBA/GL/2022/09 og ESMA35-36-2621). Einnig getur fjármálaeftirlitið gert kröfu um viðbótareiginfjárgrunn samkvæmt 30. gr. laganna sem er umfram lágmarkskröfu og viðbótarkröfu um eiginfjárgrunn fyrir fyrirtæki sem ekki flokkast sem lítil og ótengd. Fyrirtæki skal jafnframt tilkynna fjármálaeftirlitinu strax ef það uppfyllir ekki lengur eiginfjárkröfuna eða fyrirsjáanlegt er að það muni ekki uppfylla hana, sbr. 4. mgr. 11. gr. IFR.
Samþjöppunaráhætta
Kröfur um samþjöppunaráhættu verðbréfafyrirtækja byggjast einkum á IFR. Reglur um vöktun, útreikning, mörk og eiginfjárkröfu vegna samþjöppunaráhættu er að finna í 35.–42. gr. IFR.
Í 31. tölul. 4. gr. IFR er samþjöppunaráhætta, eða CON, skilgreind sem áhættuskuldbindingar í veltubók verðbréfafyrirtækis gagnvart viðskiptavini eða hópi tengdra viðskiptavina sem fara yfir mörkin í 1. mgr. 37. gr. IFR. Við vöktun og skýrslugjöf þarf þó að líta víðar en eingöngu til stöðutöku í veltubók.
Öll verðbréfafyrirtæki skulu vakta og stýra samþjöppunaráhættu sinni með traustum stjórnunar- og bókhaldsaðferðum og öflugu innra eftirlitskerfi.
Í 36. gr. IFR er mælt sérstaklega fyrir um útreikning á áhættuskuldbindingavirði hjá verðbréfafyrirtækjum sem uppfylla ekki skilyrði til að teljast lítil og ótengd samkvæmt 12. gr. IFR. Slík fyrirtæki þurfa að leggja 37.–40. gr. IFR til grundvallar við mat á mörkum og útreikning. Almenn mörk gagnvart einstökum viðskiptavini eða hópi tengdra viðskiptavina eru 25% af eiginfjárgrunni, en sérstök mörk gilda gagnvart lánastofnunum og verðbréfafyrirtækjum. Fari áhættuskuldbinding yfir viðeigandi mörk skal tilkynna fjármálaeftirlitinu um það án tafar í samræmi við 38. gr. IFR og uppfylla kröfu um eiginfjárgrunn vegna þess hluta áhættuskuldbindingarinnar sem er umfram mörkin, sbr. 39. gr. IFR.
Laust fé
Helstu réttarheimildir um laust fé verðbréfafyrirtækja eru að finna í 43.-45. gr. IFR og 6., 11. og 31. gr. frumvarps til laga um varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja auk framseldrar reglugerðar (ESB) 2023/1651 um tæknilega eftirlitsstaðla fyrir sértækar mælingar á lausafjárstöðu verðbréfafyrirtækja.
Lausafjárkrafa
Samkvæmt 43. gr. IFR skulu verðbréfafyrirtæki eiga lausafjáreignir sem samsvara a.m.k. einum þriðja af kröfu um fastan kostnað. Í ákvæðinu er jafnframt tilgreint hvaða eignir geta talist hæfar til að uppfylla lausafjárkröfuna.
Um útreikning kröfu um fastan kostnað gildir 13. gr. IFR. Samkvæmt 1. mgr. hennar skal krafa um fastan kostnað nema a.m.k. einum fjórða fasts kostnaðar næstliðins árs.
Hafi verðbréfafyrirtæki veitt viðskiptavinum fjárhagslegar ábyrgðir skal það, til viðbótar við framangreinda lausafjárkröfu, hækka lausafjáreignir sínar um 1,6% af heildarfjárhæð þeirra, sbr. 45. gr. IFR.
Fjármálaeftirlitið getur undanþegið verðbréfafyrirtæki sem uppfylla skilyrði til að teljast lítil og ótengd frá framangreindri lausafjárkröfu samkvæmt 43. gr. IFR.
Verðbréfafyrirtæki getur við sérstakar aðstæður og að fengnu samþykki fjármálaeftirlitsins tímabundið farið niður fyrir lausafjárkröfuna en skal þá aftur uppfylla kröfuna innan 30 daga, sbr. 44. gr. IFR.
Stýring og eftirlit með lausafjáráhættu
Samkvæmt 11. gr. frumvarps til laga um varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja skulu verðbréfafyrirtæki hafa traustar áætlanir, stefnur, ferla og kerfi til að greina, mæla, stýra og hafa eftirlit með lausafjáráhættu og tryggja að þau viðhaldi fullnægjandi lausafjárstöðu.
Sértækar lausafjárkröfur
Fjármálaeftirlitið getur samkvæmt 31. gr. frumvarpsins mælt fyrir um sértæka lausafjárkröfu til verðbréfafyrirtækis ef það stendur frammi fyrir verulegri lausafjáráhættu sem ekki er nægjanlega mætt með lausafjárkröfu skv. 43. gr. IFR eða ef verðbréfafyrirtæki uppfyllir ekki kröfur um áhættustýringu, áætlanagerð, ferla og stjórnarhætti sbr. 6. og 8. gr. frumvarpsins. Nánari viðmið um mat á lausafjárþörf verðbréfafyrirtækis má finna í framseldri reglugerð (ESB) 2023/1651.
Stjórnarhættir
Kröfur um stjórnarhætti ráðast meðal annars af því í hvaða flokk verðbréfafyrirtæki fellur.
Um verðbréfafyrirtæki í flokki 1 gilda stjórnarháttakröfur laga um fjármálafyrirtæki, sem munu bera heitið lög um lánastofnanir skv. frumvarpinu, sbr. 2. mgr. 1. gr. IFR.
Um fyrirtæki í flokki 2 gilda kröfur frumvarpsins um stjórnarhætti að fullu. Þau skulu meðal annars hafa traust stjórnskipulag, skýra ábyrgðarskiptingu, skilvirka ferla til að greina, stýra og vakta áhættu og fullnægjandi innra eftirlit. Stjórn ber ábyrgð á að tryggja að fyrirkomulag stjórnarhátta sé fullnægjandi og skal hafa virkt eftirlit með framkvæmd þess. Við framkvæmd krafnanna skal jafnframt taka mið af viðeigandi viðmiðunarreglum EBA, þar á meðal EBA/GL/2021/14 um innri stjórnarhætti samkvæmt IFD, eftir því sem þær hafa verið teknar upp og birtar hér á landi.
Lítil og ótengd verðbréfafyrirtæki í flokki 3 eru undanþegin tilteknum kröfum frumvarps til laga um varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja um stjórnarhætti og starfskjör. Undanþágan felur þó ekki í sér að þau séu undanþegin öllum kröfum um stjórnarhætti. Um slík fyrirtæki gilda áfram viðeigandi kröfur laga nr. 2/1995 um hlutafélög sem og ýmsar sérreglur í lögum nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga, þar á meðal ákvæði 10. gr. um störf stjórnar og framkvæmdastjóra og 1. mgr. 37. gr. um að verðbréfafyrirtæki sem veitir viðskiptavinum fjárfestingarþjónustu skuli sjá til þess að það hvorki umbuni starfsmönnum sínum né meti frammistöðu þeirra þannig að það stangist á við skyldu þess til að starfa með hagsmuni viðskiptavina sinna að leiðarljósi. Þau þurfa því áfram að hafa stjórnskipulag, skýra ábyrgðarskiptingu og innra eftirlit með hliðsjón af stærð, eðli og umfangi starfseminnar.
Fjármálaeftirlitið leggur mat á fyrirkomulag stjórnarhátta, stjórnskipulag og innra eftirlit verðbréfafyrirtækja. Hæfi stjórnarmanna og framkvæmdastjóra er jafnframt metið við veitingu starfsleyfis, breytingar á stjórn eða framkvæmdastjórn og í reglubundnu eftirliti.
Í könnunar- og matsferli fjármálaeftirlitsins er lagt mat á fyrirkomulag stjórnarhátta verðbréfafyrirtækis, sbr. 7. tölul. 1. mgr. 25. gr. frumvarps til laga um varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja. Komi í ljós annmarkar á fyrirkomulagi stjórnarhátta verðbréfafyrirtækis getur fjármálaeftirlitið m.a. krafist úrbóta, sbr. 2. tölul. 28. gr. frumvarpsins. Við tilteknar aðstæður geta slíkir annmarkar jafnframt leitt til viðbótarkröfu um eiginfjárgrunn eða sérstakrar kröfu um laust fé, sbr. 29. og 31. gr. frumvarpsins.
Birting upplýsinga
Samkvæmt 46.-53. gr. IFR skulu verðbréfafyrirtæki birta opinberlega tilteknar upplýsingar um starfsemi sína, áhættustýringu, eigið fé og aðra þætti sem tengjast fjárhagslegri stöðu þeirra.
Markmið upplýsingagjafarinnar er að stuðla að gagnsæi á markaði og gera markaðsaðilum kleift að meta áhættu, fjárhagsstöðu og stjórnarhætti verðbréfafyrirtækja.
Upplýsingarnar skulu birtar sama dag og árleg reikningsskil verðbréfafyrirtækisins eru birt. Verðbréfafyrirtæki ákveða sjálf með hvaða hætti og á hvaða stað upplýsingarnar eru birtar, að því gefnu að þær séu aðgengilegar almenningi. Upplýsingarnar skulu, eftir því sem kostur er, birtar á einum stað. Séu sömu eða sambærilegar upplýsingar birtar á fleiri en einum stað skulu skýrar tilvísanir vera á milli birtingarstaða.
Verðbréfafyrirtæki í flokki 2 skulu, samkvæmt 1. mgr. 46. gr. IFR, birta eftirfarandi upplýsingar:
- Um markmið og stefnur við áhættustýringu, sbr. 47. gr. IFR
- Um fyrirkomulag innri stjórnarhátta, sbr. 48. gr. IFR
- Um eiginfjárgrunn sinn, sbr. 49. gr. IFR
- Um hvernig þau uppfylla kröfur sem mælt er fyrir um í 1. mgr. 11. gr. IFR og 6. gr. frumvarps til laga um varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja, sbr. 50. gr. IFR
- Um starfskjarastefnu og starfskjaravenjur, sbr. 51. gr. IFR
- Um fjárfestingarstefnu, eftir því sem við á, sbr. 52. gr. IFR (gildir aðeins um tiltekin verðbréfafyrirtæki)
- Um umhverfis-, félags- og stjórnunaráhættu (ESG-áhættu), eftir því sem við á, sbr. 53. gr. IFR (gildir aðeins um tiltekin verðbréfafyrirtæki).
Verðbréfafyrirtæki í flokki 3 sem gefa út viðbótareiginfjárgerninga þáttar 1 skulu, samkvæmt 2. mgr. 46. gr. IFR, birta eftirfarandi upplýsingar:
- Um markmið og stefnur við áhættustýringu, sbr. 47. gr. IFR
- Um eiginfjárgrunn sinn, sbr. 49. gr. IFR
- Um hvernig þau uppfylla kröfur sem mælt er fyrir um í 1. mgr. 11. gr. IFR og 6. gr. frumvarps til laga um varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja, sbr. 50. gr. IFR
Í framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/2284 er að finna tæknilega framkvæmdarstaðla með nánari leiðbeiningum og sniðmátum fyrir upplýsingar skv. 49. gr.
Í framseldri reglugerð (ESB) 2022/1159 er að finna tæknilega eftirlitsstaðla með nánari leiðbeiningum og sniðmátum fyrir upplýsingar skv. 52. gr.
Skýrslugjöf
Sjöundi hluti IFR kveður á um reglubundna skýrslugjöf verðbréfafyrirtækja.
Samkvæmt 1. mgr. 54. gr. IFR skulu verðbréfafyrirtæki í flokki 2 veita ársfjórðungslega upplýsingar um:
- Fjárhæð og samsetningu eiginfjárgrunns
- Kröfur um eiginfjárgrunn
- Útreikning krafna um eiginfjárgrunn
- Umfang starfsemi að því er varðar skilyrðin sem sett eru fram í 1. mgr. 12. gr. IFR, að meðtöldum efnahagsreikningi og sundurliðun tekna eftir fjárfestingarþjónustu og viðeigandi K-þætti
- Samþjöppunaráhættu
- Að minnsta kosti árlega skulu upplýsingarnar jafnframt fela í sér nánari sundurliðun á samþjöppunaráhættu í samræmi við 2. mgr. 54. gr. IFR.
- Lausafjárkröfur
Fyrirtæki í flokki 3 njóta einfaldaðra skýrslugjafarkrafna. Þeim ber að skila framangreindum upplýsingum árlega. Þau þurfa hins vegar ekki að veita upplýsingar um samþjöppunaráhættu og hafi fyrirtæki verið veitt undanþága í samræmi við aðra undirgrein 1. mgr. 43. gr. IFR er því jafnframt ekki skylt að skila upplýsingum um lausafjárkröfur.
Nánari reglur um framkvæmd skýrslugjafar er að finna í framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/2284, þar sem kveðið er m.a. á um viðmiðunar- og skiladagsetningar, sniðmát og leiðbeiningar um framsetningu upplýsinga. Reglugerðinni hefur síðar verið breytt með framkvæmdarreglugerð (ESB) 2025/2159.
Þá gilda sérstakar skýrslugjafarkröfur samkvæmt 55. gr. IFR um verðbréfafyrirtæki sem stunda starfsemi samkvæmt 3. og 6. tölul. A-þáttar I viðauka tilskipunar (ESB) 2014/65 (MiFID II) sbr. c- og f. lið 16. tölul. 4. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga nr. 115/2021, þ.e. viðskipti fyrir eigin reikning eða sölutryggingu fjármálagerninga og/eða markaðssetningu fjármálagerninga á skuldbindandi grundvelli.
Yfirlit yfir afleiddar reglugerðir
Afleiddar gerðir IFR
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1771 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina nánar umfang og aðferðir við beitingu varfærniskrafna á samstæðugrunni fyrir samstæðu verðbréfafyrirtækis.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1455 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla fyrir kröfur um eiginfjárgrunn verðbréfafyrirtækja á grundvelli fasts kostnaðar.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1159 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla fyrir opinbera birtingu fjárfestingarstefnu verðbréfafyrirtækja.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/244 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina fjárhæð heildartryggingarfjár til útreiknings á K-þættinum „tryggingafjárkrafa stöðustofnunar“ (K-CMG).
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/76 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina leiðréttingar á reiknistuðlum K-þáttar fyrir „daglegt viðskiptaflæði“.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/25 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla þar sem tilgreindar eru aðferðirnar við mælingu K-þátta sem um getur í 15. gr. þeirrar reglugerðar
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/26 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina hugtakið um aðskilda reikninga til að tryggja vernd fjármuna viðskiptavinar ef til falls verðbréfafyrirtækisins kæmi.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2284 um tæknilega framkvæmdastaðla að því er varðar skýrslugjöf vegna eftirlits og birtingu upplýsinga verðbréfafyrirtækja.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2159 um breytingu á tæknilegum framkvæmdarstöðlum sem mælt er fyrir um í framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/2284 að því er varðar skýrslugjöf vegna eftirlits og birtingu upplýsinga verðbréfafyrirtækja.
Afleiddar gerðir IFD
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1668 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla þar sem tilgreindar eru mælingar á áhættu eða áhættuþáttum sem kröfur um eiginfjárgrunn sem settar eru fram í þriðja og fjórða hluta reglugerðar (ESB) 2019/2033 ná ekki yfir eða ná ekki nægilega yfir og leiðbeinandi eigindlegar mælistikur fyrir fjárhæðir viðbótareiginfjárgrunns.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1651 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla fyrir sértækar mælingar á lausafjárstöðu verðbréfafyrirtækja skv. 6. mgr. 42. gr. þeirrar tilskipunar.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1117 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina kröfurnar fyrir gerð og eðli upplýsinganna sem lögbær yfirvöld heima- og gistiaðildarríkja eiga að skiptast á.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1118 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina með hvaða skilyrðum samstarfshópur eftirlitsaðila skal framkvæma verkefni sín.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2154 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina viðeigandi viðmið til að tilgreina flokka starfsfólks sem í starfi sínu hefur marktæk áhrif á áhættusnið verðbréfafyrirtækis eða eignanna sem það stýrir.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2155 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina flokka gerninga sem endurspegla með fullnægjandi hætti lánshæfi verðbréfafyrirtækis við áframhaldandi rekstrarhæfi og mögulegt annað fyrirkomulag sem er viðeigandi að nota með tilliti til breytilegra starfskjara.
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2153 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina viðmiðanirnar fyrir að fella tiltekin verðbréfafyrirtæki undir kröfurnar í reglugerð (ESB) nr. 575/2013.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/389 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar snið, uppbyggingu, efnislista og árlega birtingardagsetningu upplýsinganna sem lögbær yfirvöld skulu birta.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2526 breytingu á tæknilegum framkvæmdarstöðlum sem mælt er fyrir um í framkvæmdarreglugerð (ESB) 2022/389 að því er varðar efnislista upplýsinganna um einstök gögn sem lögbær yfirvöld skulu birta.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1119 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar stöðluð eyðublöð, sniðmát og verklagsreglur fyrir upplýsingaskipti milli lögbærra yfirvalda heima- og gistiaðildarríkja.
Viðmiðunarreglur
- EBA/GL/2021/13: Guidelines on sound remuneration policies under Directive (EU) 2019/2034.
- EBA/GL/2021/14: Guidelines on internal governance under Directive (EU) 2019/2034.
- EBA/GL/2022/07: Guidelines on the benchmarking exercises on remuneration practices and the gender pay gap under Directive (EU) 2019/2034.
- EBA/GL/2023/08: Guidelines on benchmarking of diversity practices, including diversity policies and gender pay gap, under Directive 2013/36/EU and Directive (EU) 2019/2034.
- EBA/GL/2022/09 og ESMA35-36-2621: Joint EBA and ESMA Guidelines on common procedures and methodologies for the supervisory review and evaluation process (SREP) under Directive (EU) 2019/2034.
- EBA/GL/2022/10: Guidelines on the criteria for the exemption of investment firms from liquidity requirements in accordance with Article 43(4) of Regulation (EU) 2019/2033
- EBA/GL/2024/03: Guidelines on the application of the group capital test for investment firm groups in accordance with Article 8 of Regulation (EU) 2019/2033