Virk lánþegaskilyrði
Settar hafa verið reglur til að takmarka hámark veðsetningarhlutfalls nýrra fasteignalána í samræmi við 1. mgr. 25. gr. laga um fasteignalán til neytenda nr. 118/2016. Í samræmi við 2. mgr. 25. gr. sömu laga heimila reglurnar aukið svigrúm til fjármögnunar kaupa á fyrstu fasteign neytenda.
Jafnframt hafa verið settar reglur um hámark greiðslubyrðar í hlutfalli við tekjur neytenda þegar nýtt fasteignalán er tekið í samræmi við 1. mgr. 27. gr. sömu laga. Reglurnar veita einnig aukið svigrúm til fjármögnunar kaupa á fyrstu fasteign eins og gert er ráð fyrir í 2. mgr. sömu lagagreinar. Þar að auki er almenn undanþága skilgreind í reglum um hámark greiðslubyrðar. Þá undanþágu geta lánveitendur nýtt, kjósi þeir það, til að veita neytendum lán með hærri greiðslubyrði en reglurnar leyfa. Undanþáguheimildin er skilgreind sem 10% af fjárhæð veittra lána hvers lánveitenda á undangengnum ársfjórðungi.
Reglur um hámark veðsetningarhlutfalls og greiðslubyrðarhlutfalls fasteignalána til neytenda eru endurskoðaðar reglulega með hliðsjón af kerfisáhættu sem getur tengst þróun á íbúða- og lánamarkaði.
| Lánþegaskilyrði | ALMENNT | FYRSTU KAUPENDUR | Almenn undanþága |
|---|---|---|---|
Hámark veðsetningarhlutfalls | 80% af markaðsverði fasteignar* | 90% af markaðsverði fasteignar* | |
Hámark greiðslubyrðar í hlutfalli við tekjur neytenda | 35% af ráðstöfunartekjum** | 40% af ráðstöfunartekjum** | 10% á hverjum ársfjórðungi af heildarfjárhæð veittra
fasteignalána |
*Virði fasteignar samkvæmt kaupsamningi eða samþykktu kauptilboði. Liggi kaupsamningur eða samþykkt kauptilboð ekki fyrir skal notast við fasteignamat eða brunabótamat Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar eða verðmat löggilts fasteignasala, í samræmi við útlánareglur lánveitanda.
**Ráðstöfunartekjur eru skilgreindar sem væntar viðvarandi tekjur neytenda að frádregnum beinum sköttum og gjöldum. Við útreikning á greiðslubyrði fasteignalána skal miða við að lágmarki 5,5% vexti og að hámarki 40 ára lánstíma fyrir óverðtryggð lán en að lágmarki 3% vexti og að hámarki 25 ára lánstíma fyrir verðtryggð lán.