Fara beint í Meginmál

Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með starfsemi annarra aðila á fjármálamarkaði. Þar má meðal annars nefna greiðslustofnanir og aðra greiðsluþjónustuveitendur, rafeyrisfyrirtæki, nánar tiltekin eignarhaldsfélög og fjármálasamsteypur, Tryggingarsjóð vegna fjármálafyrirtækja, lánshæfismatsfyrirtæki, gjaldeyrisskiptaþjónustu, þjónustuveitendur sýndareigna, innheimtuaðila, lánveitendur og lánamiðlara fasteignalána til neytenda og slitastjórnir fjármálafyrirtækja. Þá sinnir fjármálaeftirlitið afmörkuðu eftirliti er varðar neytendarétt, s.s. með skilmálum vátryggingasamninga, veitingu fjárfestingarþjónustu og fjarsölu á fjármálaþjónustu. Auk þess er eftirliti með útibúum nánar tiltekinna erlendra aðila á fjármálamarkaði sinnt. Jafnframt sinnir það eftirliti með aðgerðum ákveðinna tilkynningarskyldra aðila gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (sjá nánar hér).

Nánari upplýsingar um eftirlit með öðrum aðilum má finna hér.