Skýrsla bankaeftirlits Seðlabanka Íslands um lífeyrissjóði fyrir árið 1996
Skýrsla bankaeftirlits Seðlabanka Íslands um lífeyrissjóði hefur nú verið
gefin út í sjötta sinn. Hún er unnin upp úr ársreikningum lífeyrissjóða fyrir
árið 1996 og tryggingafræðilegum athugunum á lífeyrissjóðum.
Í árslok 1996
voru starfandi lífeyrissjóðir 66 og hafði þeim fækkað um 9 á árinu. Af 66
lífeyrissjóðum tóku 9 ekki lengur við iðgjöldum, þannig að fullstarfandi sjóðir
voru 57. Af 66 lífeyrissjóðum voru 56 sameignarsjóðir og 10 séreignasjóðir. Af
sameignarsjóðum voru 5 með ábyrgð ríkissjóðs, 9 með ábyrgð sveitarfélaga, 2 með
ábyrgð ríkisbanka, 3 með ábyrgð hlutafélaga og 37 án ábyrgðar annarra.
Helstu niðurstöður skýrslunnar
Hrein eign til greiðslu lífeyris í árslok
1996 nam 306,5 ma.kr. samanborið við 262,6 ma.kr. í árslok 1995. Aukningin á
árinu var 16,7% sem samsvarar 14,3% raunaukningu miðað við hækkun vísitölu
neysluverðs. Ráðstöfunarfé skv. sjóðstreymi á árinu 1996 nam samtals 62,7 ma.kr.
samanborið við 46,8 ma.kr. árið á undan. Raunávöxtun eigna allra
lífeyrissjóðanna á árinu 1996 var 7,8% en 6,9% árinu 1995. Hrein raunávöxtun
eigna allra lífeyrissjóðanna á árinu 1996 reyndist vera 7,6% miðað við hækkun
neysluverðsvísitölu en 6,6% á árinu 1995. Á árinu 1996 námu iðgjöld samtals 19
ma.kr. en 17 ma.kr. árið 1995. Á árinu 1996 nam gjaldfærður lífeyrir 9,3 ma.kr.
en 8,4 ma.kr. árið 1995. Kostnaður á árinu 1996, þ.e. rekstrargjöld að
frádregnum rekstrartekjum, nam samtals 747 m.kr. en sambærileg fjárhæð á árinu
1995 var 691 m.kr. Sem hlutfall af eignum, þ.e. meðaltali hreinnar eignar til
greiðslu lífeyris, nam kostnaður 0,3% árið 1996 sem er sama hlutfall og árið
1995 fyrir lífeyrissjóðina í heild.
Nr. 24/1997
12. september 1997