Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok september 1997 og til samanburðar í lok desember 1996 ásamt breytingum í mánuðinum og frá ársbyrjun til loka september.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans rýrnaði um 4 milljarða króna í september og nam í lok mánaðarins 30,8 milljörðum króna. Erlendar skammtímaskuldir bankans eru óverulegar og breyttust lítið í mánuðinum.
Á gjaldeyrismarkaði nam nettó gjaldeyrissala Seðlabankans í september
1,5 milljörðum króna. Eftir lækkun um 0,4% í september hafði gengi íslensku
krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, hækkað um 1,4% frá áramótum til
loka september.
Heildareign Seðlabankans í
markaðsskráðum verðbréfum jókst í september um tæpa 0,3 milljarða króna og er þá
miðað við markaðsverð. Eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs lækkaði um rúma
0,8 milljarða króna en ríkisbréfaeignin jókst um tæpan 0,1 milljarð króna.
Ríkisvíxlaeignin jókst um 1 milljarð króna og nam í mánaðarlok tæpum 1,9
milljörðum króna. Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir jukust um 2,5 milljarða
króna í september en nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu
um 0,1 milljarð króna og námu 3,1 milljarði króna í mánaðarlok. Grunnfé bankans
lækkaði um 2,7 milljarða króna og nam 19,1 milljarði króna í lok september.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabankans og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans
Nr. 27/1997
6. október 1997