Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok október 1997 og til samanburðar í lok desember 1996 ásamt breytingum í mánuðinum og frá ársbyrjun til loka október.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans rýrnaði um tæpa 3,7 milljarða króna í október og nam í lok mánaðarins 27,1 milljarði króna. Erlendar skammtímaskuldir bankans eru óverulegar og breyttust lítið í mánuðinum.
Á gjaldeyrismarkaði nam nettó gjaldeyrissala Seðlabankans í október 4,1
milljarði króna. Eftir lækkun um 1,4% í október var gengi íslensku krónunnar í
lok mánaðarins, mælt með vísitölu gengisskráningar, svipað og í byrjun
ársins.
Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum
jókst í október um tæpa 3,4 milljarða króna og er þá miðað við markaðsverð. Eign
bankans í spariskírteinum ríkissjóðs jókst um rúma 0,3 milljarða króna en
ríkisbréfaeignin stóð nánast í stað. Ríkisvíxlaeignin jókst um tæpa 3,2
milljarða króna og nam í mánaðarlok rúmum 3,9 milljörðum króna. Kröfur
Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 1,7 milljarð króna í október en
nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir jukust um 5 milljarða króna og
námu 8,1 milljarði króna í mánaðarlok.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabankans og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans
Nr. 29/1997
5. nóvember 1997