Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands
Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok
nóvember 1997 og til samanburðar í lok síðasta árs ásamt breytingum í mánuðinum
og frá ársbyrjun til loka nóvember.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 1,8
milljarða króna í nóvember og nam í lok mánaðarins 28,9 milljörðum króna.
Á
gjaldeyrismarkaði námu nettó gjaldeyriskaup Seðlabankans í nóvember rúmum 1
milljarði króna. Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar,
hækkaði í nóvember um 1,3%.
Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum
verðbréfum lækkaði í nóvember um tæpa 1,3 milljarða króna og er þá miðað við
markaðsverð. Eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs jókst um rúma 0,5
milljarða króna en ríkisbréfaeignin lækkaði um 0,1 milljarð króna.
Ríkisvíxlaeignin lækkaði um 1,7 milljarða króna og nam í mánaðarlok rúmum 3,2
milljörðum króna. Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 1,3
milljarða króna í nóvember en nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir
lækkuðu um tæplega 1,2 milljarða króna og námu tæpum 7 milljörðum króna í
mánaðarlok. Grunnfé bankans lækkaði um 2 milljarða króna og nam 16,4 milljörðum
króna í lok nóvember.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabankans
og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans
Nr. 34/1997
3. desember 1997